Við erum ekki á heljar þröm!

Hvað segir það okkur að útlendir auðmenn ásælast örfoka land upp á fjöllum. Einfaldlega að við eigum verðmæti þar,við vissum það,þótt hvorki finnist svartagull,né þetta glóandi. Gamalt máltæki segir að bókvitið verði ekki sett í askana, matarílát til forna. Svo einfalt var það á þeim tíma,þegar hver vinnandi klukkutími var dýrmætur til fæðuöflunar. Rétt eins og jöklarnir hopa,varð þetta máltæki að gera það líka. Íslendingar sóttu menntun til útlanda á árum áðuri,en nú eigum við háskóla,tækniskóla og gott grunn menntakerfi. Þetta árétta ég vegna þess að þeir fjölmörgu,sem sjá villuna í þeim ásetningi og ákafa einstakra stjórnarliða að selja Grímsstaði á fjöllum,eru vel að sér í mati á ágóða af sölu.Sá ágóði er ekki túskyldings virði,við það bætist stjórnarskrá varin lög sem beinlínis banna sölu á landinu okkar. Já þar er komið að tilfinninga tengdum andmælum,sem allflestir samþykkja. Þetta land mun verða okkur áþreifanlega miklvægt,þegar fram líða stundir,skapa mikla vinnu ,sem um leið færir okkur flóttamenn okkar aftur heim,því næstum hver einasti Íslendinur sækir aftur til uppruna síns. Látum ekki Krata skipta okkur út fyrir Kínverja,með annars ágætri virðingu fyrir þeim.
mbl.is Ekki einfalt að kaupa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Algjörlega sammála þér.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.2.2012 kl. 12:48

2 identicon

Vil rétt benda ykkur á að meirhluti sveitarstjórnar Norðurþings er skipuð fulltrúum sjálfstæðis og framsóknarflokks, þannig að þetta hefur ekkert að gera með háttvirtann iðnaðarráðherra samfylkingarinnar. Þetta snýst um það að byggja upp atvinnu í sveitarfélaginu, en ekki landasölu til útlendinga, enda er samkvæmt þessum fréttum ætlunin að landið verði í eigu sveitarfélagsins.  Tel það mun vænlegra heldur en að ýmsir ríkisbubbar af suðvesturhorninu eigi landareignir út um allt Ísland eins og nú er. Nefni engin nöfn en vil einng benda á að meirihluti Íslands er nú í einkaeigu, en hvorki eign ríkisins né sveitarfélaga eins og það ætti að vera. Þannig að þetta er ekkert landið okkar, ekki frekar en að bíllinn þinn sé bíllinn okkar allra. Ég ætti kannski að fá að grípa aðeins í hann.

kv

Guðm. Sal.

G. Sal. (IP-tala skráð) 13.2.2012 kl. 17:14

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hvað sem þú segir um það Guðmundur þá rær Samfylkingin undir þessari sölu/leigu með öllum árum. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.2.2012 kl. 17:21

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Guðmundur, þú sérð hvað Ásthildur skrifar,sem er laukrétt allir Íslendingar vita það. Barnalegi frekjutónninn um bílinn minn,er búinn að skemmta mörgum.

Helga Kristjánsdóttir, 19.2.2012 kl. 23:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Helga Kristjánsdóttir
Helga Kristjánsdóttir

Helga Kristjánsdóttir bara húsmóðir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 146890

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband