Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Mánudagur, 20.8.2012
Sælla minninga þrátt fyrir tap .....
Við fórum 8 úr stórfjölskyldunni a vegum Chelsea,klúbbsins. Það voru auðvitað gífurleg fagnaðaróp,þegar strákurinn sett,ann. Mitt fagn var fyrir Íslendinginn fölskvalaust. Ég lét þó uppi hvatningu til minna manna,með smá aðvörun frá börnunum. Þessi ferð var sérstaklega vel heppnuð og skemmtileg,í raun ógleymanleg.Má segja að maðurinn minn hafi verið á seinasta ,,korterinu,, áður en Alzheimer heimti hann í ómynnisdjúpið. Annar hver Íslendingur setur saman vísur, enn þá eimir eftir af þeim sið fann þennan kumbara frá þeim tíma; Ég fór til London og leiddist það ekki, þótt lið mitt yrði að lúta í gras,Eiður Smári með ótætis hrekki, æ, íslenska stoltið fékk sér í glas.
Eiður afgreiddi United í fyrsta leik - myndskeið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Sunnudagur, 19.8.2012
Steini er enginn guð!!!!!
Á fimmþúsundkallinum roðnaði af reiði
Ragnheiður Brynjólfs og lýsti frati
á stjórnina,og ætlar Evrunni að eyða
og gera sönnum Íslendingum greiða.
Ragnheiður Brynjólfs og lýsti frati
á stjórnina,og ætlar Evrunni að eyða
og gera sönnum Íslendingum greiða.
Evran samþykkt fyrirvaralaust | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 17.8.2012
Forsetinn skýrir einfalda hluti!
Sem er um þá hefð, að handhafar forsetavalds einn eða fleiri,fylgi forseta er hann fer erlendis,í opinberum erindagjörðum. Þannig var handaband ígildi undirskrifta lengst af á síðustu öld,líklega er þetta eina trygga handabandið,sem gildir eitt og sér í dag. Má ekki halda í hefðir sem undirstrika heiðursmanna samkomulag,
Framsalið í formi handabands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 10.8.2012
Lykillinn að bættu siðferði Alþingismanna
Liggur í atkvæðum kjörkassanna. Kjósendur hafa nú tekið afleiðingum gremju sinnar í seinustu kosningum,um leið og þeim birtist ný sýn. Meðan sigurvegarar kosninganna töldu sig hafa tögl og haldir og allt í hendi sér eftir að hafa náð völdum,sviku þeir þjóðina grímulaust. Líklega talið sig óhulta í loðnum hrammi Esbésins. Við sem erum ,,ekki fædd í gær,, þekkjum takta aðdraganda kosninga,líklega hafa þeir alltaf verið keimlíkir. Það þýðir lítt að velta sér upp úr því ,hvar við værum stödd ef þessi ólánsstjórn hefði ekki komist á koppinn. En að sleppa frá þessu fári,er kraftaverk sem engin nema þjóðin, með ómetanlegum stuðningi forsetans,má þakka sér. Sleppa!! Um leið og henni opnast ótrúleg sýn á fjandsamlegum öflum,sem ekkert vilja af fullveldinu vita. Mér hefði fundist öruggast að kjósa aðeins til 2 ára í senn,þannig að þingmenn kæmust ekki upp með neitt þvílikt sem við höfum oðið vitni að,sem er áframhaldandi upptaka regluverks Esbésins,þótt viti að meirihluti þjóðarinnar sé á móti því.
Flytja þarf lyklafrumvarpið á nýjan leik | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 28.7.2012
Drollan getur nú ýmislegt
En ekki stokkið úr flugvél,hvorki í fallhlíf eða án. Þótt Ólympíuleikarnir séu keppni íþróttafólks frá yfir 100,þjóðum,er greinilegt að mótshaldarar undirbúa sig eins og íþróttafólkið,reikna sek.og mín.allra hreyfinga rétt eins og þau. Þannig reyna þeir að toppa þá sem haldin var 4 árum áður. Ég sá ekki þetta drottningar-feik,kom inn í sýninguna um kl10,til að freista þess að sjá Íslendingana,það tókst mér,án þess að hafa kynnt mér í hvaða röð þeir yrðu, heppin!! Ólympíuleikarnir í Rússlandi eru mér minnisstæðastir allra,fyrir þátt tæknimanna þeirra í kveðjustund leikanna,verst ég gat ekki googlað til að sjá hvaða ár það var. Tákn leikanna var bangsi (rússneski björninn),og kom hann iðulega fyrir meðan á leikunum stóð. Það var ekki ljósasjóið,heldur lifandi manneskjur sem framkölluðu einstæð hughrif með mismunandi litum slæðum,sem sýndu tárin hríslast niður vanga bangsakrúttsins. Magnþrungin kveðjustund ógleymanleg fyrir svo marga þar sem draumar rættust og dóu,fólk sem batts ævarandi vináttu eða ástarsamböndum. Það þótti nú ekki gæfulegt væru það USSR og USA.sambönd. En annars finnst mér klaufalegt hjá Bretunum,að leika fallhlífastökk Betu,sem aldrei klæðist í annað en kjóla og pils. Það gæti hafa farið um hefðarfrúrnar,nú eða hertoga þessarar siðprúðu þjóðar.
Drottningin kom í fallhlíf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 20.7.2012
280 dagar eftir til starfsloka Stjórnar-umræðan snýst um Kína.
Þeir eru sagðir hugsa í árum,þegar um viðskipti er að ræða. Man eftir þeim á einni loðnuvertíðinni hjá Júlíusi,pabba hennar Katrínar Iðnaðarráðherra. Þeir sýndu okkur hvernig þeir kokkuðu loðnuna,dyfu henni í olíu og átu eins og við borðum snakk,eða Sardínur. Lostæti sögðu þeir,en Íslendingar bættu við fróðleik um trú þeirra,að kvenloðnan yki kynorkuna,líklega eingöngu karlanna. Prjónar voru óþarfir við loðnu át,en unglingar skemmtu sér við gamansöguna; ,,með hverju borða Kínverjar þegar þeir eru að flýta sér,,? Svar; með prjónavél.
Þriðjudagur, 17.7.2012
Já allsherjarráðherra!
Þú færpð stjörnu í kladdann,fyrir að taka í lurginn á refsiglöðum nágrönnum. Ég sem hef séð og heyrt til þín í þingsal,krefst þess að þú sýnir sömu takta,gegn ofríkis þjóðunum. Það er ekki seinna vænna að nýta talandann,okkur til varnar utan þings og lands. Sérstaklega ánægjulegt að ákæra Makrílinn fyrir gleypigang í matarbúri okkar þjóðlýstra tegunda,um leið og við lýsum hann löglega veiddan hér. Mér er til efs að almenningur í ákæru löndunum hafi hugmynd um skaðann sem Makríllinn veldur,er því jafnréttdræpur og úlfur í gripahjörð.
Segir hótun um refsiaðgerðir áróður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 9.7.2012
Borgar Hreyfingin???
Í hildarleik eftirhruns panikinni varð Borgarhreyfingin til. Lagt var upp með glænýjan flokk og stefnuskrá líkt og allir aðrir flokkar,heit um hagsmunavörslu fyrir hina minnstu meðbræður. Fólk sem var reitt og miður sín,tók trú og kaus þetta nýja afl. Meðlimir þessa örflokks blönduðu geði við mótmælendur á Austurvelli á fyrstu árum þingsetu sinnar og býsnuðust yfir ákafa og frekju Jóhönnu í öflun fylgis við umsókn í Esb. Hvað kom fyrir þetta blessaða fólk? Loksins er þau hafa ráð lýðræðis í hendi sér,þakka þau ekki kjósendum traustið,og fella ógnarstjórnina. Þau hafa það í hendi sér,en Gunnari,leikstjóra og Herberti skulu þau borga,enda ekki eins öflug og stjórnin sem virðir úrskurð hærra dómsstigs að vettugi,þegar henni hentar.
Borgarahreyfingin þarf að borga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 3.7.2012
Bankinn minn er hræddur við mig og mína líka!!!
Heimabankinn gegnir ekki nafni mínu það hefur gerst áður. Nú,þá grípur maður símann,með tilheyrandi bið og niðurtalningu. Upp koma grunsemdir,eftir nafn kemur öryggisnúmer,sem skal tilkynna viljirðu fá upplýsingar.Mundi ekki eftir að þess þyrfti,svo auðvitað var það fallið í ómynnisbrunninn. Blessuð stúlkan er að framfylgja fyrirmælum yfirmanna sinna. Viðhorfið til kúnnans er breytt, peninganna verðir, passa að vondi kallinn komi ekki og hirði þá.
Sunnudagur, 1.7.2012
Með Ríkisstjórnar útvarpið brjótandi hlutleysið allt frá 2009
Samt nær þessi mikilhæfi maður,Ólafur Ragnar Grímsson þessum stórkostlega árangri. Kannski er léttir okkar,einhver mikil byrði Björns,eða hvað eru Vinstri grænir að sækja til Esb. Líklega eru völdin það sem skiptir máli,völdin í dag sem notuð eru til að þurrka út lýðræði Íslands. Færa Esb. allt sem við Íslendingar höfum unnið hörðum fyrir.Það hagar þannig til núna að þessi óþjóðlega stjórn,fer með valdið,nýtir það með einstökum hætti.að ekki sé meira sagt,í leynum og svífast einskis,sem nýleg dæmi sanna.
Tilraunin mistókst skiljanlega | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggvinir
- andres08
- annabjorghjartardottir
- benediktae
- eggman
- eeelle
- coke
- zumann
- godmarino
- hreinn23
- halldorjonsson
- heimssyn
- hildurhelgas
- hhraundal
- haddih
- ingagm
- ingibjhin
- kreppan
- jensgud
- islandsfengur
- jonvalurjensson
- huxa
- eyjapeyji
- photo
- kolbrunerin
- krist
- kristjan9
- krissi46
- lindagisla
- altice
- larahanna
- maggib
- pallvil
- ragnar73
- fullvalda
- ziggi
- snj
- sighar
- stormsker
- saemi7
- kerfi
- asthildurcesil
- astromix
- kermit
- thjodarheidur
- agla
- axelaxelsson
- bjarnijonsson
- dansig
- einarbb
- bjartsynisflokkurinn
- fornleifur
- frjalstland
- geiragustsson
- gudjonelias
- bofs
- noldrarinn
- tilveran-i-esb
- gustafskulason
- hlf
- kliddi
- ingolfursigurdsson
- thjodfylking
- naflaskodun
- johanneliasson
- jonmagnusson
- prakkarinn
- ksh
- kristinthormar
- kk455
- lifsrettur
- loncexter
- maggi-phil
- maggiraggi
- omargeirsson
- svarthamar
- predikarinn
- raksig
- samstada-thjodar
- fullveldi
- ollasak
- solbjorg
- stendors
- theodorn
- skolli
- valur-arnarson
- vinstrivaktin
- tsiglaugsson
- thordisb
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar