Þáttaka Íslendinga á EM 2016 á við þjóðhátíð!

  Íslendingar tóku við sér og flykktust til Frakklands með þjóðerniskenndina sýnilega í fasi búningum og skreytingum. Hver einasta þjóð elur með sér draum um að hampa bikarnum,sem barist er um.- Samvinna íslensku þjálfaranna var svo eftirtektarverð að minnir helst á norræna fóstbræður.  Skopmyndin á svo vel við drauminn sem innst inni var trauðla raunhæfur en blundar þó!

Þessir dagar voru fyrir svo marga Íslendinga á við þjóðhátíð. Hvenær vorum við seinast eins og ein þjóð? Höfum við undanfarin ár fagnað 17.júní á tilhlíðlegan hátt?

En myndin minnir mig svo innilega á gamla tíma. Drengir léku sér í fótbolta og settu á svið keppnir,oftast götu keppnir.Ég féllst eitt sinn á að leggja til bikar.Fann einn úr áli sem mældi kg. hveitis og sykurs ofl.Málaði hann og afhenti elsta syninum sem verðlaun,eitthvað nefndi ég að hann héti þá HrauAustu.Keppnin var á milli Hraunbrautar og Austurgerðis í Kópavogi (barnabænum). Löngu seinna fékk ég að vita að þeir höfðu deilt um tímann litlu elskurnar og annað liðið tók á rás upp að Kópavogskirkju með bikarinn,með hina á hælunum. Myndin af  þeim Lars og Heimi minnti á þennan viðburð úr barna minna bernsku.   


mbl.is Færði Lars skopmynd að kveðjugjöf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

No

 Hann er á A-inu þarna USA ekki Nóinu,annars væru varir hans hringlaga. Vona að gæfan og guðdómurinn ríki aftur í þessu voldugasta ríki heims. 


mbl.is Uppsteytur gegn Trump á fyrsta degi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Henson hafði ekki undan 14.júní---

    Þann dag fóru 5 úr stórfjölskyldu minni og voru beðin að ná í 3 peysur fyrir þá sem þau ætluðu að hitta í Lion.Ein þeirra reyndist 2nr of lítil. Eins og svo oft áður bjargaði Henson málum átti stærri,en okkur var sama þótt hún væri ekki merkt. Aðal málið var að túlka bláa hafið,stuðnings mannhaf íslensku strákanna, þaðan sem þeir fengu sönginn og Úhh-ið í endalausri hvatningu. Eftir biðröðinni að dæma,ætla menn ekki að missa af þessum fágæta árangri landsliðs okkar.-Þeir eru þegar orðnir þjóðhetjur hvernig sem fer.Áfram Ísand.......


mbl.is Hleypt inn í hollum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Helga Kristjánsdóttir
Helga Kristjánsdóttir

Helga Kristjánsdóttir bara húsmóðir

Júlí 2016
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 120
  • Frá upphafi: 147012

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 87
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband