BREIÐABLIK

  Til hamingju bikarmeistara! Það var kalt á Laugardalsvelli í dag. Það var það líka árið 1971 á Melavellinum,þar sem við fáir (miðað við í dag) áhangendur Blika hvöttum lið okkar í bikarleik gegn Víkingi,sem unnu 1-0. Mér var hugsað til vinkonu minnar,hennar Huldu Pétursdóttur,"Blikamömmu",sem svo var kölluð,því hún átti alla þessa  Blikastráka! Nei,fæddi  ekki af sér,nema 3,en við vorum saman á Melavellinum í tapleiknum,fyrir 37 árum.                  Þótt það séu 2 ár frá því Hulda dó,minnist fólk enn á hana og   segja:   "Heldurðu að Huldu hefði líkað að vera hér í kvöld",en eins og allir Blikar vita ,lék hún og maður hennar heitinn með Fram og héldu ávallt góðu sambandi við gamla félaga. ´                Þótt leikurinn hafi verið frekar daufur í fyrri hálfleik,varð hann þeim mun meira spennandi í þeim seinni. Akkurat það sem við viljum og   ekkert fyrirséð,eða hver vissi að upp myndi koma nýr markaskorari,vissum að liðið er gott oft á tíðum spilandi frá aftasta manni upp að vítateig andstæðinganna. Það er bjart framundan meðan við höldum þessum leikmönnum og þjálfaranum,sem stjórnar eins og  hljómsveitarstjóri með sprota. 
mbl.is Breiðablik bikarmeistari í fyrsta skipti eftir vítakeppni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

til hamingju með sigurinn.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 4.10.2009 kl. 02:13

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Takk Jóna mín.

Helga Kristjánsdóttir, 4.10.2009 kl. 02:23

3 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Veistu, ég held að Hulda hefði verið mikið stolt á laugardag. Sennilega hefði hún fellt nokkur tár, eins og ég gerði, og hrópað, loksins, loksins, loksins!

Frábær sigur, frábær dagur. Til hamingju Helga, þá átt hlut í þessu!

Ingibjörg Hinriksdóttir, 9.10.2009 kl. 20:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Helga Kristjánsdóttir
Helga Kristjánsdóttir

Helga Kristjánsdóttir bara húsmóðir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband