12.lota í 13 lotukeppni í Póitísku boxi.

            Þannig virkar þetta pólitíska at á mig. Það er komið að leiðarlokum hjá forystu Samfylkingarinnar í ríkisstjórn og hún veit það. Ekki er seinna vænna fyrir hana,að nota áróðursstyrkinn frá E-bandalaginu,sem hefur líklega kostað gerð kynningarmyndar um Brussel. Þessi mynd var sýnd á styrktarstöð (2)  þeirra í kvöld.Ég datt óvart inn á þessa mynd,sá hana ekki alla,vegna þess að mér fannst áhugaverðara að sjá á INN,samtal Björns Bjarnasonar við Sigmund Davíð. En Brussel-myndin var nógu löng fyrir mig,borgin er falleg,vel staðsett fyrir kaupsýslumenn,og allt annað fágætt sem suma fýsir að sjá,  (hér sjást þeir ekki lengur). Ilmur leikkona sem er kynnir,leiðir áhorfandan í listasöfn  borgarinnar.Belgar státa af teiknimyndasögum sínum,eins og t.d. Tinna. Belgískur viðmælandi Ilmar,segir teiknimyndahefð hluta af         þjóðararfleifð þeirra og er stoltur af. Persónulega dái ég munnhörpu-jazzleikara þeirra Tools Thielmann,mest af þeirra listamönnum. Myndin var sýnd í opinni dagskrá,hvort við verðum rukkuð um að hafa stolist til að kíkja,er ekki vitað,en við erum nú alvön að verjast rukkurum E-ríkja.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Toots  Thielemann.

Helga Kristjánsdóttir, 12.9.2011 kl. 21:44

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það hafa örugglega farið nokkrar millurnar á vatn Samfylkingarinnar í ESB málinu og hafi þeir skömm fyrir.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.9.2011 kl. 10:21

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Já góða mín,kallaðir styrkir en afturkræfir,ef ég hef tekið rétt eftir.

Helga Kristjánsdóttir, 14.9.2011 kl. 11:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Helga Kristjánsdóttir
Helga Kristjánsdóttir

Helga Kristjánsdóttir bara húsmóðir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 110
  • Frá upphafi: 147014

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 79
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband