Þorpin heilla

         Morgan Freeman er ekki bara heillandi leikari,hann getur heillast sjálfur. Venjulega er það fréttnæmast ef þeir falla fyrir veika kyninu,en þessi frétt er frábrugðin. Freeman sá sennilega mannlífið,glamourlaust,afslappað og hamingjuríkt,í litla þorpinu Greenwood Lake. Slíkir listamenn skynja greinilega vel þessa kosti,njóta þess að vera einn af þeim,meðan á tökum stendur. Einn af okkar allra bestu listamönnum Baltasar Kormákur,finnur sennilega það sama í litla þorpinu,Hofsósi á Íslandi. Glæsilega sundlaug staðarins er gjöf frá hans ekta frú og vinkonu hennar.Það hljóta menn að túlka sem viðurkenningu og hlýhug til þorpsins,sem veitir þeim afslöppun og hvíld. Það er nú einhvernveginn svo,að frægðin getur ein og sér verið mikill streituvaldur. Sú var tíðin að fyrir ótal mörgum árum,að Kormákur kom iðulega á Kópavogsbraut,bankaði og spurði hvort Nonni væri heima. Hann var mikið yngri en þessi sonur minn. Þar kom að því að ég spurði hann hvað þeir væru að bralla. Við erum í fótbolta,erum að leika lið,í meistarakeppnum. Sigurjón(Nonni),segir oft í gríni eins og honum er tamt,að hann hefði kennt Baltasar að leika, fyrstur manna. Þeir voru sannkallaðir ,,þorparar,, í þessum barnabæ,sem Kópavogur kallaðist á þeim tíma.  
mbl.is Morgan Freeman langar að ættleiða þorp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gott hjá honum ef það er það sem hann er að sækjast eftir.  Friði og ró og fallegri náttúru, hvað er betra fyrir sálina en það?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.8.2011 kl. 10:10

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Já Ásthildur mín,flestum finnst gott að geta og eiga val um friðsælan reit. Ég gef mér það auðvitað,að svo sé.  Stórborgir heims eru heillandi,fyrir ferðamanninn,sem upplifir ysinn og spennuna. Allt er þetta gott hvað með öðru.  Var að uppgötva að ökuskírteini mitt þarfnast endurnýjunnar,ætla að drífa mig til pólitísins og fá bráðabirgða,alltaf span,takk fyrir mín kæra.

Helga Kristjánsdóttir, 29.8.2011 kl. 11:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Helga Kristjánsdóttir
Helga Kristjánsdóttir

Helga Kristjánsdóttir bara húsmóðir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 147120

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband