Rooney skoraði 2 mörk á Old Trafford í meistaradeildinni,er Manchester United sigraði AC Milan 4-0

       Það er líklega rétt hjá Beckham,að Rooney sé besti knattspyrnumaður heims um þessar mundir.  Hann hefur sýnt geysilegar framfarir,enda segist hann hugsa meira um reglulega hvíld og svefn,heldur en áður. Skrítið að vera að dást að Ensku fótboltaliði,um leið og ég hef skömm á framferði  ríkisstjórnarinnar.Þetta svona rétt hvarflaði að mér,en óþarfi að gera sér rellu yfir því.Á leiknum í kvöld fóru fjölmargir Íslendingar,auk þess sem 2 ungmenni gengu með leikmönnum inn á völlinn,þvi atriði missti ég af.    Manchester United, vann þennan leik með yfirburðum. Það styrkti stöðu United-manna að skora snemma,þeir urðu öruggari og unnu vel fyrir hvern annan.Auðveldur leikur fyrir dómarann að dæma. Nú er bara að vona að þeir mæti jafn einbeittir í næsta leik. Ég hræðist Arsenal,því þeir munu koma dýrvitlausir mæti þeir Manutied,auk þess sem þeir eru fanta góðir.                  Enski boltinn tók stakkaskiptum,þegar þeir fóru að kaupa leikmenn frá suður evrópulöndum  og Afríku  sem voru svo áberandi tekniskari en þeir. Lengi loddi við enska ,kick and run,aðferð hrútleiðinleg. Ég var aðdáandi Ítalska boltans,en auðvitað keypti peningaveldið sýningar réttinn á honum.   Síðan fylgdi enski boltinn,öllu bútað niður í 1,2,3,4,svo fengist sem mest fyrir,hverja rás.Ég hefði viljað borga fyrir valda leiki,en tæknilega er það ekki hægt,segja þeir.                        Óvenju margir Englendingar eru í M.U. 5 fastamenn í aðalliðinu,en 1 þeirra Carrek var meiddur. Ef til vill er komið að enskum að vinna heimsmeistaratignina í sumar,því þeim fer stöðugt fram. Beckam getur enn þá styrkt liðið,hann breytti miklu í liði A.C. þegar hann kom inn á.Ég get svo vel unnt Englendingum að verða heimsmeistarar,sem þeir hafa ekki orðið síðan 1966,að mig minnir,það var nú eitthvað drama í úrslitaleiknum þeim við Þjóðverja.Sem betur fer sýnir Ruv.frá leikjunum,vonandi amast ekki allt og margir yfir því,þessi viðburður er á 4 ára fresti.
mbl.is Ferguson: Milan átti ekki möguleika
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Helga Kristjánsdóttir
Helga Kristjánsdóttir

Helga Kristjánsdóttir bara húsmóðir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 112
  • Frá upphafi: 146991

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 82
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband