Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Vert að nýta sér þessa nýung.

    Ekki spillir að sjá léttar grínmyndir úr bílnum og geta skellt upp úr svona án þess að opinbera furðuhlátur í bíósal,svona einskonar hryssuhlátur,a.m.k.ef enginn annar skellir upp úr. Það er auðvelt að trúa læknavísindunum,sem hafa komist að því að hlátur er lífsins elexír,verkar á allt systemið.  Það er kannski óþarfi að glápa á grínið framyfir tírætt,nema  þó!!! Maður getur víst líka drepist úr hlátri. Chaplin gamli er óborganlegur þótt oft detti manni ekki hlátur í hug ,þegar hann túlkar innilegasta sakeysi og góðmennsku einfeldningsins á sinn þögla máta. Drífa sig á morgun.
mbl.is Klassískt grín stendur alltaf fyrir sínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta með vonbiðlana,???

     Áður en svo mikið sem gjóar augunum í átt að þeim,verður hún að leysa búið undan tilkalli Brussel.s til afskipta af því. Það er heilmikið spunnið í Bjarna,en ekki fyrr en hann losar þjóðina undan þessari hallærislegu ,,umsókn,, í Esb,er hann í fjötrum fyrri ríkisstjórnar, eða var ekki samkomulag Sjstfl. og Framsóknar að draga hana til baka-og ég hebbði haldið það.- Þróttmiklir Eyjapeyjar hafa fengið nóg og þykir engum á hægri kantinum mikið. 
mbl.is Flokkurinn „eins og syrgjandi ekkja“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðarskútan er hriplek!!

   Afleiðingar lausagöngu fjármálamanna eftir inngöngu í EES. Það er auðvitað langsótt,en þannig er það bara,allt hefur snúist á versta veg síðan,að viðbættri heimskreppunni 2008. Okkar ástsælu landar eru valdir að þessum tíðu lekum,sem er komið fyrir í fjölmiðla gímöldum,þar sem þeir valda sem mestum skaða. Það er ekki auðvelt að setja fyrir hann engar neglur halda,við verðum bara að klofa í þessari stöppu,eins og menn gerðu í Kolgrafarfirði, hirða það góða,hreinsa svo ýlduna upp.
mbl.is Ólafur kærir Katrínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta eru látalæti,til þess gerð að leyna því að fleiri vilja ekki inn.

            Carl Bildt vonar að Ísland skipti um skoðun. Ég er nú á því að íslenskir samherjar þeirra reyni að samfæra hann um að halda opnu,eftir að þeim tókst að hræða ríkisstjórnina með hrópum á Austurvelli. Þeir vona líklega að gömlu Nei-sinnunum ýmist þrjóti kraftur,eða drepist á tímabilinu,en gá ekki að því að unga fólkið er í miklum meirihluta að sjá spillinguna í Esbéinu. Þau vilja frelsi og eru reiðubúin að taka við.
mbl.is ESB stækki ekki næstu fimm árin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú finnst mér nóg komið.

     Drengurinn ræður ekki við skapofsann,það hljóta allir að sjá. Ég með mínar alþýðupælingar í sálarfræði,held satt að segja að Suarez hafi þurft að verja sig oft og mörgum sinnum,sem lítill gutti. Líklegt að kjafturinn hafi reynst hans besta vörn,því ólíklegt er að heilinn hans í brjáluðu keppnisskapi leiksins,greini það öðruvísi og viðbrögðin verði eftir því. En vegna fordæmisins og framgangs þessarar vinsælustu íþróttar heimsins,er ekkert til ráða hjá stjórnarmönnum Fifa annað en refsa. Sá brotlegi fær vonandi hjálp á meðan hann afplánar og ólíklegt annað en Liverpool standi með honum á þeim erfiða tima.
mbl.is Amma Suárez: Ráku hann heim eins og hund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heyrðu kallinn minn!!

 "Hverjir voru fagnandi þegar þú einn ákvaðst að Moys yrði arftaki þinn hjá Manutd;?--- Ég var ein af þeim sem varð hissa og nokkuð vonsvikin yfir vali Ferguson,því mér fannst bara ekki sópa neitt af David Moys.En þrátt fyrir vonbrigðin í fyrstu,var maður tilbúinn að taka honum,þótt ekki gengi allt sem skyldi. Gamla góða, það gengur bara betur næst, var innlegg mitt við miður fagnandi viðbrögðum á MU.,síðunni á Facebook.Satt að segja hélt ég að ráðamenn klúbbsins myndu úr því sem komið var láta Moys klára tímabilið.

Ferguson hafði unnið til virðinga í knattspyrnuheiminum,aðlaður og er vel að því kominn. En leikmannakaup hans seinustu 2-3 ár eru að mínu viti ekki til fyrirmyndar,að undanskyldum van Piersy(x).    Það sást glöggt að hann treysti ekki þessum leikmönnum í þess stað sótti hann yfirburða leikmenn fyrri ára. Átti svo Moys að gera þá betri fyrst kallinn gat ekki notað þá.------  Einhverju sinni sagði Sörinn,að enginn leikmaður væri stærri en félagið ,MU, átti þar við leikmann með stjörnustæla.  David Moys átti að mínu viti við þessi vandamál að stríða,hann hafði ekki fest sig í sessi og óhægt um vik að tala digurbarkalega eins og fyrirrennarinn, auk þess ekki sama typa. Ég tek undir með Roy Kean,leikmenn Manutd. mega skammast sín,það var greinilegt að þeir voru stærri en Moys/þ.m.Manutd. og nenntu ekki að leggja sig fram.Læt vera að nefna þá. En Manchester United,verður mitt lið út yfir gröf og dauða.


mbl.is Ferguson samþykkti að reka Moyes
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórnin fallin,? Og svo, allt í plati.

  Hljóp vinstrinu kapp í kinn,?Ekki vegna höfuð óvinaflokksins,ó nei heldur af því Samfylkingin komst yfir 20%. Ekki þykja mér kannanir á vegum Baugsmiðla sannfærandi,eftir að hafa fylgst með fréttum þeirra,frá því umboðslaus Esb.umsókn flaug til Brussel. Ekki man ég hvort þessar kannanir voru svo tíðar,þegar sú norræna var við völd,en jafn viss að þær hefðu ekki ratað sem 1.frétt með allt vinstraliðið við stýrið.  Ef menn vilja alls ekki í ESB. þá fara þeir alls ekki að kjósa Samfylkinguna,eða hvað hefur breyst,? Líklegt að mögnuð sé upp ólund vegna erfiðra mála sem ríkisstjórnin á við að glíma,ekki síst vegna allskonar óþarfa skuldbindinga sem sú fyrri skyldi eftir sig. Eðlilegt að það tefji fyrir framgangi mála.... Og svo höfuð tilgangurinn,rétt eins og hjá unglingum sem suða í foreldrum sínum um að fá að sækja útihátíð,,það ætla allir að fara,, allir eru þá nánustu vinir og þau mega ekki verða viðskila við hjörðina, er það ekki svona?? ?
mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn með 30,5% fylgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru Piratar spámenn,? Og vilja að almenningur trúi að þeir sjái teikn í tölvum.um

          Það vill svo vel til að í stjórn landsins eru menn meðvitaðir um græsku Össurar og glalda varhug af öllu sem hann kemur til leiðar. Séu þetta varnaðarorð Pirata og hugur þeirra beinist að hagsæld föðurlands síns,sýndu þau varúð og tillitsemi við fákunnandi almenning í klækjapólitík,fremur en að spá ígildi heimsendis. Svo greinilega komin í stríðsleik,þar sem þeu eru stóra númerið í uppþoti. Nei takk við höfum öll ráð til að verjast esbéinu. 
mbl.is Fríverslunarsamningurinn gildra?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

MAKRÍLLINN

                  SJÁUM LANGÞRÁÐA LAUSN
                  LOKS ER ESB AÐ BAKI
                  ÞÚ ÞYKIST SÝNA OKKUR RAUSN
                  SEM AF,ÞÖKKUM DAMANAKI.

Vertu sæl, við erum ekki á þínum vegum.

                                                                                                                                                                                            Sjáum langþráða lausn?
                          þá loks er Esb að baki!
                          Þú þykist sýn,okkur rausn
                          sem af,þökkum frú Damanaki.         
                                                                                 
                                                                

mbl.is Hótar refsiaðgerðum vegna markrílsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Helga Kristjánsdóttir
Helga Kristjánsdóttir

Helga Kristjánsdóttir bara húsmóðir

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 148140

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband