Þeir halda áfram eins og þeir byrjuðu!

 Tapsárir eigendur tískuhúsa í USA tilkynntu,þegar Trump hafði unnið forsetakosningarnar að þau myndu alls ekki hanna föt á frú Trump.- Það skaðaðar hana ekki hið minnsta,eða hver hefur séð glæsilegri klædda -first lady,? 

Fjórir fræknir fara í fýlu vegna ummæla forsetans. Forsetanum verður ekki skotaskuld úr því að bæta öðrum góðum í ráðgefanefndina,hann er einstakur hann Donald Trump. 


mbl.is Minnkandi stuðningur stórfyrirtækja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fréttir um vonsku og hverskonar ofbeldi alltof fyrirferðamiklar.

Getur verið að þær selji betur en sögur af fórnfýsi og dugnaði hins vinnandi manns. Vonandi er það góða svo venjulegt og þykir lítt spennandi að það er ekki í frásögur færandi.                       En varðadi þessa óhuggulegu frétt væri lesandanum mun hughægara ef henni fylgdi nánari málalok; Þá hvort þrælarnir hefðu fengið bætur þegar illmennin voru sakfelld eftir svona langn tíma? Þætti ekki mikið að þeim væri borguð full vinnulaun allar stundir kúgunarinnar auk bóta.


mbl.is Heil fjölskylda dæmd fyrir þrælahald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er happ að leika í bláu!!

Þá vísa ég til "Blá hafsins"stuðnings liðs íslenska landsliðsins.Vonandi verður þessi frétt staðfest fljótlega,prúttið búið og púttið hans Gylfa tekur við í allar holur knattspyrnuvalla Englands.
Ég óska fyrirliðanum okkar velfarnaðar í nýjum áskorunum. Bentu svo í vestur Gylfi Þór eftir hvert mark og fyrirgjöf,þetta geta allir botnað.Lifðu heill.
 


mbl.is Samþykktar 48 milljónir fyrir Gylfa?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aldrei flúðum við kuldann!

 En þáðum boð til Gran Kanarí á Spáni,árið 2000 eftir jól. Annan morgunn í bungalow stigum við í ökla djúpu vatni fram til að fá okkur morgunverð. Það hafði ringt alla nóttina og hélt áfram um morguninn,afar sjaldgæft en húsið hélt ekki vatni,þá var skipt um þyrpingu.-Áætlað að vera 1/2 mánuð,en var framlengt í 3 vikur.Ég var búin að fá nóg af sólinni og hefði miklu frekar unað mér í frosti í heitum potti að horfa upp til stjarnanna. Ég þekki nokkra sem búa á Spáni og una hag sínum vel,það er frelsið sem við búum við eiga val um það.


mbl.is Fengu nóg af kulda og fluttu til Kanarí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru Bandaríkin gömul nýlenduþjóð?

   Var að lesa blogg Styrmis sem segir utanríkisráðherra Tékklands bera upp á nýlenduveldi Evrópu hryllileg glæpaverk þegar þeir réðu yfir mörgum þeirra sem fremja hryðjuverk í dag.Margir eiga eftir að skrifa um það og leita heimilda,þegar minnið þrýtur.þess er getið að Bandaríkin hefðu banað þegnum Íraks en man ekki fjöldan,þar er líkast til átt við svokallað Íraksstríð.--Alltaf er verið að reyna að toppa Nazista í viðbjóðnum,sem á þá að réttlæta hryðjuverk dagsins í dag,? Það voru nú engar gælur i löndunum kringum Tékkland,eftir að Jugóslavía leystist upp. 


Hver einasti krakki hló!

   Ekki eru allir viðhlæjendur vinir! 

  Ekki var ég viss um að hafa þennan rétt eftir! Jú goggle sannfærði mig,en það vakti furðu mína hve margir hafa notað þennan málshátt,þingmenn og blaðamenn.
   


mbl.is Clinton líkti Trump við Nixon
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

„ Að láta höfuðin skipta“!?

   Getur maður sagt svo og vísað til orðatiltækisins "að láta hendur skipta." Ólíkt höndunum geyma hausarnir stjórn skapsmunanna sem buðu upp á þessa hrútasýningu; Augljós leik-tilþrif sýndi sá sem féll.


mbl.is Mourinho ekki sáttur við Agüero
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Helga Kristjánsdóttir
Helga Kristjánsdóttir

Helga Kristjánsdóttir bara húsmóðir

Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 73
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband