Árlegri 13.gleði fjölskyldunnar lauk í gær.

Í Garðabæ nutum við ljúffengra rétta matreiddum að hætti hússins eins og gestgjafarnir orða það jafnan.´Þar sem vinnu og skóladagur er 7.kvöddu allir um 10.30.Ég sem er drollari,ofurmett og´og ofurviðkvæm fyrir vannærðum,ákveð að kíkja á blogsendibréf frá Kjartani (photo),sem er í Kína.Hann segir meðal annars,Hér snýst allt um mat og aftur mat,en ekki eins og heima um helv.veðrið.            þau vinkona hans voru að spjalla við fólk sem var nýkomið úr veislu,en voru að fara á veitingastað í nágrenninu að borða.  Matarmenning er að sögn þeirra mesta menning.     Allar útsendingar sjónvarps eru í HD gæðum og mikið af flottri grafik sést ekki mikið í Evrópu.   Það verður spennandi að sjá myndir og lýsingar Kjartans á blogginu,ekki síst þar sem hann skoðaði þann stað sem næsta heimssýning Expo 2010,verður.Hann skoðaði þann stað þar sem íslenski skálinn mun rísa. Við Íslendingar erum ekki af baki dottin,þegar kemur að sýningum á borð við þessar,erum ekki eftir bátar annarra þjóða, brennum ekki alltaf af.


Nohh! Uppákoma

  og ég sem er að taka á móti ungum vini frá Noregi kl.3,45. Það verður upplit á honum verði hann var við þessi hátíðahöld og tækifærið nota ég til að plata "smá" að verið sé að fagna komu hans ofl. Norðmanna með fulla vasa af norskum krónum. Afkomendur Leifs Eiríkssonar kunna að fagna góðum gestum ,vinur "þú komst í hlaðið". 


mbl.is Keflavíkurflugvöllur ohf. tekur til starfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Boðorðin 10

´Biblíunnar er greinilega efitt að halda,er mér til efs að nokkur hafi áhyggjur af þeim.Ekki þeir í hásætunum,ekki ég ekki Palli og Pési. Bara vegna þess að það er svo erfitt."þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig", er bara ekki viss um að ég elski sjálfa mig.Eða óvin þinn,er fjandinn ekki þar með?    Eða girnast eigur náungans, mig blóðlangaði í banka,nú á ég þá alla,að hluta,færi mig bara upp á skaftið eftir því sem aldur endist. Veit ekki númer þessa:"Þú skalt ekki drýgja hór".Ég átti bróður sem hét Jón Þór,var alltaf kallaður Þór.   Það rifjaðist upp í fjölskylduboði að elsti bróðir minn klagaði strýðni systur minnar á Þór þegar þau voru lítil ,"mamma hún ytta er að dríja hór."  Sagði ekki einhver guðfræðingur að guð hefði húmor,vona það,hann er algóður.


Heims um ból

     Þennan himneska sálm syngja kristnir menn um víða veröld á jólunum. Þessi tónsmíð lætur engan ósnortinn trúi ég,þótt hann sé ekki kristinn.Syngjandi með,flæða um sálina bænir eins og,"guð gefðu að!" þó ég hafi efast stundum,fyllist ég fögnuði og afneita honum ekki.Í þeirri vissu bið ég að börnin mín og allir Íslendingar eigi gleðileg jól.    óskir mínar snúast ekki um að við vöðum í seðlum,heldur föngum réttlætið.   Gleðileg jól!

Brown veður barinn

     Já sækir í sig veðrið.   Mér er slétt sama hvað löndum hans þykir um hann punktur. 

  Fagna hinsvegar framtaki þeirra 5 þingmanna,sem vilja ekki una þeirri meðferð sem stjórn U.K. beitti okkur og ullu okkur ómældum skaða.  Það að þessir 5 eru úr sinn hvorum flokknum,sýnir samstöðu okkar þegar mikið liggur við.     Jafnvel þótt við vinnum ekki þetta mál í peningum og það kosti sitt,verður eftir því tekið og kærkomin leið til að hreinsa okkur af svo mörgum óþverraumsögnum. Og þú gamla Frón:"sem á brjóstum borið og blessað hefur mig" Blessist þér allt.
                                                                
mbl.is Brown sækir í sig veðrið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

H E IÐ UR

Þjóðarstoltið eða bara grobbið að var í okkur,afmælisgestum á laugardag. Alexander barnabarn mitt varð 8 ára þennan dag. Hann fæddist hjartveikur er langveikur,en Eiður er verndari samtaka langveikra barna. FRamfarirnar hjá þessum annars ólíku köppum eru undraverðar.    Ég fullyrði að væri Eiður fastamaður´(sem hann verður) þá næði hann því sjálfsöryggi sem gerði hann að einum af bestu miðjumanni heims. fylgdumst með hverri hreyfingu hans,býsnuðumst yfir meðspilurum að gefa ekki á hann þegar okkur fannst það upplagt,en svona er bara boltinn.    Þegar hann var farinn útaf,fórum við  að leika okkur að nöfnum knattspyrnumanna, sem við höfðum séð í gegnum tíðina og voru fyndin,stundum borin fram eins og íslenskt mál. Tek dæmi af þeim sem ég man.Einn var í liði Barca;Verslings Snæder.Af gömlum köppum kom upp í hugann:Sonur minn Boban, Kaka,Bakari.Boli,að ég tali nú ekki um Markmanninn sem hét Enginn,þá var nú ÓMari Ragnarsyni skemmt(er mig að misminna að hann lýsti þeim leik) Í markinu er Enginn,  þar var ég "tekin",:hvaða fíflagangur er það nú varð mér að orði, Eitthvað Fifabann?  Finnum fleiri.
mbl.is Eiður Smári í byrjunarliði Barcelona
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Helga Kristjánsdóttir
Helga Kristjánsdóttir

Helga Kristjánsdóttir bara húsmóðir

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband