Tekur undir með samherja sínum,Ögmundi.

                   Nema hvað?  Póitískt ráðinn formaður landskjörsstjórnar,telur óþarfa af Hæstarétti að beyta bókstaflegum grundvallarreglum í dómi sínum og ógilda kosningarnar til stjórnlagaþings. Ég tók þátt í kosningunni utan kjörfundar samtímis 2öðrum,víst var þetta léleg aðkoma,verandi að taka þátt í leynilegum kosningum. Sjaldan er talað um þau atkvæði sem tókst ekki að telja í talningavél,sem voru handtalin án fulltrúa,sem er ólöglegt. Það er afar líklegt að þau hafi verið samviskulega talin, en lög á að halda. Þess vegna kæra menn,þess vegna dæmdi Hæstaréttur samhljóða kosningarnar ógildar.  
mbl.is Segir Hæstarétt hafa farið út fyrir sitt svið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamla "SVARTA MARÍA minnir á sig.

     Undanfarið   hafa ekki færri en 4,fréttir af handtökum grunaðra,verið sagðar hér á þessu litla svæði.Ýmist leiddir úr Svörtu Maríu ,eða á leið í hana. Skil ekki þessar handtökur svo seint,en verð að viðurkenna fávísi  mína,varðandi  rannsóknarhagsmuni, Get ekki annað en trúað að eitthvað miðist  áfram hjá saksóknara,þeir sem eru saklausir,verða að fá sig hreinsaða.   Já  fyrst ég minntist á bílinn sem  minnti mig á Svörtu Maríu, vil ég segja frá því að svo var lögreglubíll fyrri ára nefndur,svipaði til sendiferðabils. Sjaldan voru leiddir í hann merkilegri brotamenn en ölvaðir slagsmálahundar,sem börðust með hnúunum, það brotnaði varla kjammi ,en glóðaraugu og bólgnum vörum komust þeir ekki hjá.      Það var þó maður á móti manni,ég held bara,að það hafi aldrei verið  legið í launsátri. Þeir voru riddarar,sem virtu eiginlega óskrifaðar reglur,þótt það líktist ekki  hanska-kasti enskra lorda.     Það hrærist eitthvað meira með mér. Ég stend mig að því að telja uppeldi  hjá  okkar kynslóð ábótavant. Ósjaldan kveið maður heimsóknum,kvenna með börn sín,sem allt var leyft,vaða inn í og upp um allt.Aldrei var þeim bannað neitt,nema með grútmáttlausu tuði.sem ekkert var fylgt eftir. Svo var það talið til afreka,þegar einn guttinn,ekki svo ýkja gamall,losaði um handbremsu bíls,sem við það rann niður brekku,hefði getað stórslasað fólk,en sem betur fer slapp það. Þótt  þau fái nú ekki refsingu þarf ekki að hæla þeim fyrir eins og þau hefðu afrekað eitthvað stórkostlegt.      Í dag skal fagna sigri handboltastrákanna,sá þá á tölvunni hér,einhver góðviljaður,sendi 4 mögulegar rásir til að horfa á,stundum var það slitrótt,en nægð,mér. Spennan hefur borið mig ofurliði svo nú get ég ekki sofnað,þá skrifa ég eitthvað lauflétt og fer ekkertyfir það,bara kærulaus og bíð góða nótt.

Manchester United gegn Liverpool í bikarkeppni á Old Trafford

       Stór dagur í enska fótboltanum á morgun. Það er lífsins ómögulegt að spá úrslitum í svona leikjum. Sá í sjónvarpinu  einn brattan púllara dreyma um að leggja Manutd. á eigin velli. Mínir menn eru engin lömb að leika við,en hafa ekki sýnt sitt besta undanfarið,en unnið samt.  Hvort þjálfaraskipti Liverpool,breyti ehv.hjá þeim á eftir að koma í ljós. Alla vega ætla ég að njóta leiksins heima,í fyrsta sinn í langan tíma,með þessa jólagjöf,sem er áskriftin.  Ég vil breyta liði mínu aðeins, fá Scholes inn, í staðinn fyrir Andersson,ætla að sofa á því hvort ég læt O,shea byrja frekar en Rafael,svona upp á hæðina að gera.  Svo kemur púllarinn sonur minn í heimsókn horfir á gamla átrúnaðargoð sitt við stjórnvölinn,sjálfann Keegan. Þannig var það hann 1,við öll Manutd. Dalglish er það reyndar.Loksins losnuðu púllarar við Hodgson.Þó svo hann hafi náð góðum árangri með Fulham,var það ekki sjálfgefið með Liverpool.En klárlega versnar það ekki að Dalglish taki við amk frammá vor.Þeir enda sjálfsagt í efri hluta deildarinnar,en hefðu örugglega endað í þeim neðri með Hodgson áfram við stjórnvölinn.Þetta gæti orðið spennandi leikur en ég hugsa að United hafi þetta.

Liverpool ----- Manchester

           Líklega er það rétt hjá Keegan, þótt ég sé ekki í aðdáendaklúbbi Liverpool.´Maður veit ekkert hvað er að gerast innan klúbbsins,en harla fannst mér einkennilegt að láta Houlier fara,eftir að hann vann frækna sigra með liðið. Það sínir sig að klúbbar sem halda lengst í þjálfara sína,gengur best heilt yfir. Þau hlaupa ekki til handa og fóta þó titill sé ekki í húsi hvert einasta ár. Nú etja þau kappi í bikarkeppni,liðið mitt og Liverpool,eitt er ég viss um Liverpool tvíeflist,þegar þeir mæta Machester United. það er reyndar svo með öll lið. Það er leikinn knattspyrna í bikarleikjum eins og deildarleikjum,en áhorfandi skynjar samt breytingu,yfirbragðið er örlítið öðruvísi,það virkar oft sem lakara liðið,sem svo er kallað,virki á stórum köflum það betra.Þar sínir sig betur en nokkuð annað,að þetta gerist í höfði þeirra,    -núna eða búið-       Hvaða þátt þjálfarar eiga í því, gætu margir sagt mér.      Ég er hæstánægð með minn,sem stýrir liði Manutd. Hann var þó á tímabili talinn vera of gamall,en við vitum að hann fylgist með öllum nýungum,er með aðstoðar menn á kverju strái,svo er um fleiri.  Óska að lokum Manutd. góðu gengi á öllum vígstöðum.  
mbl.is Keegan: Eiga að standa með Hodgson
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lilja er eðalsteinn

                               Þau eru ekki vön slíkum gersemum,kunna þau alls ekki að meta. Þau búa yfir  öflugum ruðningsvélum við að ryðja þeim frá,úr götu sinni, Því það heftir fyrirætlan þeirra að selja þjóðina í ánauð. Þvílíkur líður,munið íslenska þjóð,hverjir komu okkur til hjálpar. lofum að ef við   sleppum frá þessum óværum,munum við ávallt minnast þeirra sem hatrammast börðust fyrir réttlæti okkur til handa.


mbl.is Lilja íhugar úrsögn úr þingflokki VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikil ábyrgð að velta steinum í götuna.

                Nei !!Ekki götuna til glötunnar.  Missa land,verða samt áfram strand,erðanú. Kolbeinn Högnason,segir þetta fyrir mig í stuðluðu máli. Hann var fæddur 25.júní,1889.

                                 Seint ég það til sorgar met,
                                 silfur mitt að þrjóti.
                                 Þegar best mér lífið lét.
                                 lék ég mér að grjóti.
mbl.is „Mikil ábyrgð að velta steinum í götuna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ath.semd,sem fékkst ekki birt hjá Evropuvaktinni.

             Láðist að afrita hana,en er ehv. svona og vísar til pistils Mr. Graham,s...... Mr. Graham! Þú mátt alveg vera heiðarlegur.Ef þú átt í vandræðum með núverandi aðildarríki,þá vekur það ekki samúð mína. Við sækjumst ekki eftir x meira vægi,en þýskir borgarar,enda mótfallin aðild. Ef þú ert að vísa til hvata sem urðu Íslendingum að falli, get ég sagt þér að örfáir eru haldnir þeim,en því miður eru þeir sem stendur við stjórnvölinn. Takk fyrir, að benda okkur á að við erum ekki undanþegin alþjóðavæðingunni. P.S. óskum ekki eftir að taka á því,(ef það er vandamál) í skjóli E.S.B. Þú meinar eflaust vel,en NEI við ESB.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Helga Kristjánsdóttir
Helga Kristjánsdóttir

Helga Kristjánsdóttir bara húsmóðir

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.8.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 148987

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband