Römm er sú taug!

                Til hamingju Ísfirðingar! Þessi viðureign var ekki mjög spennandi,en ,,leikurinn.. var eiginlega skemmtilegasti hluti þáttarins. Eins og allir vita, spilar smá heppni með spurningar inn í, gildir þá hvort þú færð þær sem einhver úr liði þínu veit. Gulla sem á kaffihúsið Álafoss,tekur örugglega vel á móti sveitungum foreldra sinna frá Ísafirði.
mbl.is Ísafjarðarbær sigraði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dæmdur saklaus!!

            Er það ekki réttar mannorðsmorð? Fylgdist með fréttum um þetta dularfulla hvarf Geirfinns og síðar Guðmundar. Það voru kanski allir búnir að gleyma þessu,nema syrgjendur og þeir sem hnepptir voru í varðhald,dæmdir,án sönnunargagna. Þetta mál vekur upp spurningu,sem ég hef oft velt fyrir mér. Áttunda  nov.árið 2000 hvarf Einar Örn Birgis,það var dularfullt, því við vissum að hann hafði samband oft á dag,við fjölskyldu sína. Yfirheyrslur og upplýsingar byrja hjá aðstendendum,svo og hjá þeim sem seinast voru með honum. Hann reyndist vera Atli Helgason,sem fullyrti að Einar væri þunglyndur.Getur lygin verið andstyggilegri. Morðinginn,læðir lymskulega að rannsakendum að fórnarlambið hafi framið sjálfsmorð.  Ef þessu hefði verið trúað,hefði leit hætt fljótlega,fjölskyldan vissi betur. Þarna reyndist tæknin veigamikl,gsm.síminn kom endanlega upp glæpamanninn. Hann afplánaði ekki þann tíma,sem hann var dæmdur til.En aftur að tilurð þessa pistils......   Já,sannleiksnefndin er spor í rétta átt.
mbl.is Vilja sannleiksnefnd um Geirfinnsmálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá birtist álfadrottning!!!

         Eins og þessi í ævintýrunum,haldandi á töfrasprota með gullinni stjörnu á endanum. Þarna í mannhafinu, var ég hímandi á einni bekkjarbríkinni,því fólk stóð í sætunum.  Hugur minn var fjarrænn,ég hugsaði um regnbogann sem ég hafði séð rétt áður milli Reykjavíkur og Álftaness,táknrænt? Skyndilega var ég vakin upp,ég þekkti þetta brosmilda andlit,sem rétti mér hendina,óðara en varði,var ég í fangi hennar kysst á kinn. "Ég bið að heilsa Ólafi",stundi ég upp eftir þessa óvæntu elskulegu vinarhót. Dorrit drottning fólksins.
mbl.is „Okkar tími er kominn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leifur Þorbergsson skipsstjóri; "Það var minn besti róður".

 Gríp niður í viðtal sem sr.Gunnars Björnssonar átti við  Leif Þorbergsson skipsstjóra,fósturbróður minn frá Þingeyri. Leifur var fd.21.des.1915 á Þingeyri. Foreldrar hans voru Jónína Benjamínsdóttir og Þorbergur Steinn Steinsson.  Þetta viðtal  birtistí í ,,Heima er best,, 1992.Mér finnst eftirtektarverð frásögn Leifs af ráðsmanni hjá athafna manninum Antoni Proppé. Hann átti 10 eða 12 kindur og heyjaði handa þeim með því að slá grasið í görðum fólks,með vasahnífnum sínum. Hann lýsir einnig  hörkunni í prestkosningum,þar sem 2 ,sóttu um brauðið. Sigurður Haukdal og sr. Sigurður Z. Gíslason. Mikill hiti var í þeim kosningum,pabbi beytti sér fyrir að Sgurður Z.kæmist að,en Haukdælir studdu Sigurð Haukdal,enda átti hann mikinn fændgarð þar. Lyktir urðu þær að Sigurður Z. var kosinn( faðir jóns bassa í K.K.  og afi Didda fiðlu).Ég var fyrsta fermingarbarn Sigurðar,skýrir  Leifur frá,  ég get bætt við að ég mun hafa verið fyrst í skírn hjá  þeim merka presti.Á vottorðinu stendur greitt kr.4,70.  Afkomendur séra Sigurðar Z voru á Þingeyri á sama tíma og ég árið 1991með gjöf (ljós á norðurgafli kirkjunnar,sem lýsir út á sjó), til minnigar um föður sinn og afa,sem hlaut þau örlög að,verða úti,á leið til messugjörðar í Hraunskirkju.      Fyrirsögnin hér vísar til þess,sem er hvað merkilegast í þessu viðtali og er mér svo minnisstætt.  Leifur segir móður sína (fósturmóður mína) hafa beðið sig að gera ekki sjómennsku að ævistarfi,en hún leifði að hann færi á síld á sumrin.  Hann getur þess,að móðurminning sín,sé eins og fögur perla. Já Leifur silgdi um heimsins höf,eftir að móðir hans dó,þá fannst honum hann ekki hafa neitt að brjóta lengur. Hann var á síld fyrir norðan á Fróða einnig Fjölni á stríðsárunum, þeir skiptu við verksmiðjuna á Hjalteyri. Fjölnir var keyrður í kaf út við Írland í apríl 1945.Helmingi áhafnar var bjargað,en 5 menn fórust. Páll eigandi Fjölnis lét smíða bát,sem Hilmir hét,hann var í vikurflutningum frá Arnarstapa til Reykjavíkur.Hann fórst í Faxaflóanum og þar með allir skipsfélagar Leifs.Föðurbróðir hans var vélstjóri á Fjallfossi og réð Leif sem kolakyndara í Ameríkuferðir.þetta örlagaríka ár,því nú var stefnantekin á Stýrimannaskólann.Hann útskrifaðist þaðan 1944. Upp úr því fer ég að muna eftir honum bróður mínum. Hann silgdi á Hamónu 170 tonna flutningaskipi,sem komst aldrei hraðar en 7mílur.Hann fór söluferðir til Englands,sem aflögðust þegar stríðinu lauk. Ég man eftir Hamónu upp í fjöru,þar strandaði hún 17.des. 1945. Stýrishúsið af henni þénaði lengi sem flugskýli á Þingeyrarflugvelli. Egill á Hnjóti við Patreksfjörð,tók það síðan til varðveislu,þar sem hann kom á fót flugminjasafni.                     Það var minn besti róður; "Sú sjóferð sem skærast lýsir í minningu minni,átti sér stað,er við fórum á færabátnum Flosa í fiskiróður út af Dýrafirðnum,árið 1958. Vinur minn Egill Halldórsson frá Dýrhól,hafði komið hér að á opnum báti kvöldið áður,með 400 kílo af fiski. Við ýttum frá,vorum út af Barðanum í Norðaustan bræluskít. Þar var einnig Sæfari frá Þingeyri. Hann siglir í átt til okkar,en sjáum hann síðan hverfa upp í fjörð,við hugsuðum ekkert um það meir. Það er svo ekkert næði þarna lengur til þess að vera með færin úti,svo ég segi við strákana;Farið þið bara fram í strákar,ég ætla að kippa hérna upp á Sandvíkina undir Barðanum. Svo förum við að keyra upp. Þá sé ég einhverja trillu þarna hugsa,,getur Egill verið kominn út aftur.Í sama mund sé ég að þetta er bátur á hvolfi niðri í öldudal og mennirnir á kilinum. Ég kallaði strax á strákana sem voru komnir í koju fram í lúkar.  Síðan legg ég að skipbrotsmönnum,finnst þeir vera að benda mér að ég eigi að leggja upp í. Þeir troða marvaðann og halda bátnum annar framan á,hinn aftan á. Ég legg svo að þeim þarna upp í báruna og gengur ágætlega að ná þeim inn. Báturinn fór náttúrulega niður um leið og þeir hreyfðu sig á kilinum. Þegar Héðinn skellur á dekkinu,segir hann,,Nú munaði mjóu,, Ég var flutt til Rvk. þegar þessi giftusamlega björgun átti sér stað.Einn af strákunum sem réru hjá Leifi,sögðust ekkert hafa skilið í kallinum,þegar hann tók þessa líka örlagaríku ákvörðun. Sjálfur sagði hann mér þótt ekki komi hér fram,að honum hafi fundist´eins og tekið væri í stýrið. Hann sem aldrei hafði nefnt neitt þvílíkt,meðan ég ólst upp með þessum elskulegu köllum.En blessuð sé minning þeirra.

Segið svo að 0,sé ekkert

               Eitt og sér já!   En misnotað af þjófum og ræningjum,veltur það á milljónum og milljörðum,eftir fjölda þeirra. Veit nokkur hvað þau eru mörg,sem laumað var inn frá gömlu bönkunum í þá nýju? Við vitum að þau ,,núll,, erum við að borga,,,,hverjum? Segi eins og íþróttafréttamaður í andakt: "Hvaðan komu þau? Hvert eru þau að fara? Við viljum svör.
mbl.is Keypti lúxusbíl fyrir 11 þúsund krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gerplu-stúlkur

          Ég óska Agnesi hjartanlega til hamingju,Thelma var ekki langt frá því að komast einnig í úrslit. Annars er svo langt síðan ég kunni reglurnar í stiga gjöf,að þetta gæti virkað eins og í hundrað metra hlaupi,þegar það munar oft aðeins 0,03 er þá meira en sjónar munur.Þær halda næst til Tokyo í Japan,á Heimsbikarmót,sem hefst í okt. Það hefur sannarlega vaxið félag okkar Kópavogskvenna sem við stofnuðum 1970, svo kæmumst í íþróttasali bæjarins, að iðka hressinga og heilsubótaleikfimi.
mbl.is Agnes komst í úrslit í Slóveníu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki hávaðasöm mótmæli,en beinskeytt

    Þessi mál eru búin að vera lengi í umræðunni,enda brýnt að ákveða framtíðar lausn samgangna á sunnanverðum Vestfjarðarkjálka. Ég var þarna á ferð sumarið 2010,svo ég veit nokkuð um þessa holóttu vegi. Við fórum lúshægt yfir verstu kaflana,enda fengið vitneskju um bíla sem brotnað hafði undan,í þessari ,,ófæru.,, Ég spyr svona án ábyrgðar,hvort Ögmundur sé hræddur við Svandísi,sem ekki má sjá túnfífil slitinn upp,án þess að fá "móðursýkiskast". Hvað er Teigskógur merkilegri en Þrastaskógur og önnur kjarrlendi í t.d.í Grímsnesi. Veit ekki betur en að minnsta kosti einn af sumarhúsaeigendum í Teigskógi,sé hlynntur vegalagningu þar um,telur það hagræðingu fyrir sig. Hvað sagði Eyrún frænka mín,, mannlífið skal víkja fyrir náttúrunni,, miðað við ákvörðun ráðherra.  Maður og mold, búi í sátt á Ísafold. 
mbl.is Gengu af fundi með Ögmundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Helga Kristjánsdóttir
Helga Kristjánsdóttir

Helga Kristjánsdóttir bara húsmóðir

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.8.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 148980

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband