TRÚA-TRÚA-TRÚA

         Þessi texti Bubba,er mér svo minnisstæður og leitaði sterkt á mig við lestur þessarar fréttar.Lítill ömmustrákur í heimsókn frá Noregi,lá á gólfinu lék sér að bíl og sönglaði með,þegar lagið hans Bubba hljómaði í útvarpinu,,glúa,glúa,glúa,var framburður barnsins,fyrir umþ.bil 18 árum.,,Þingmaður og svarið er ne eee nei,,þingmaður og svarið er ja aaa já,hljómar kunnuglega!!!          Fréttin er frá Selfossi,þar sem séra Óskar H. Óskarsson segir þáttöku í kirkjustarfi aldrei verið meiri. " Fólk leitar í trúna og þangað sem svolítið skjól er að finna",er haft eftir honum.                   Já fólki líður illa,er hrætt,það þekkir úr sögunni allar þær plágur,sem gengið hafa yfir Ísland,en þessa, kallaða hrun,enginn.  Á sama tíma vitum við,sem alin erum upp við áunnið hugvit,leyst marga þrautina aðra en viðskipti við banka og okrara,að bjargræðið er hér,hjá afkomendum litlu Gunnu og litla Jóns.  Finnum þau og virkjum.     Ekki er ólíklegt að starf presta og safnaðarnefnda séu vanmetin,sjaldan er fjallað um það. Starf kirknanna í Kópavogi eru mér vel kunn,sérstaklega Hjallakirkju,þar sem ég veit um góð hjón,sem eiga þar marga skjólstæðinga,en hafa ekki hátt um.       Það er friðsælt í kirkjum,augu mín leita venjulega að altaristöflunni,þar er frelsarinn sjálfur,af því að ég gleymi honum svo oft,bið ég auðmjúk,hjálpaðu þjóð minni,  ég veit, trúa,trúa,trúa.
mbl.is „Fólk sækir í trúna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Átti að vera:..og svarið er trúa,trúa trúa.

Helga Kristjánsdóttir, 9.10.2010 kl. 01:45

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Heyr, heyr

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 10.10.2010 kl. 00:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Helga Kristjánsdóttir
Helga Kristjánsdóttir

Helga Kristjánsdóttir bara húsmóðir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 147082

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband