Góð samlíking!!

   Hún Eygló á afar gott með að tjá sig, þótt maður hafi á tilfinningunni að blessuð stúlkan sé þreytt í röddinni og fréttamenn ættu að hlífa fólki við spurningum á víðavangi,oft hlaupandi á milli staða sem þau eiga erindi við vegna vinnu sinnar. Mikið hefur áunnist í að gera börn áræðnari að tjá sig,þótt annað hafi ágerst það er eineltið. Ég kveið t.d. fyrir því að vera ávörpuð í boðum áður fyrr,fann fyrir roða og var oft misskilin. Þannig varð það er mér var ,,skipað,, að heimsækja hefðarfrú á Ísafirði (frænku fósturföður míns),á,leið minni í keppnisferðalag í handbolta fyrir langa-löngu.Hún spurði hvernig hefur pabbi þinn það,? Ég með hjartað upp í hálsi,ætlaði í stuttu máli að afgreiða svarið eins og fullorðnir gerðu sagði; "Hann er alltaf að drepast",ó mæ!! Fékk svo seinna að heyra það að hún fósturdóttir frændans væri ódönnuð og "hvað"? kuldaleg,sem var auðvitað óverjandi.  En svona er bara lífið, 

                                         Ég á ekki gott með að tjá mig í tali,

                                         því tek ég mér penna í hönd

                                         og umboð hans er að sál minni svali

                                         svo stýri minn hugur og hönd.

                       


mbl.is Heilt klapplið sem vonar að illa gangi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 16. september 2013

Höfundur

Helga Kristjánsdóttir
Helga Kristjánsdóttir

Helga Kristjánsdóttir bara húsmóðir

Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.10.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 149100

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband