Færsluflokkur: Dægurmál

Það er nótt, stutt í 2010

   Ingo og fleiri  bloggvinir  eru  að puða í pólitík, og erum við sjaldan sammála núorðið.   Ég held við séum sammála um að hverskonar ósæmileg auðgunarbrot,eða hagsmunapot séu ólíðandi,en gæta skal hófs í ásökunum og láta ekki blinda reiði stýra ferðinni.Það er alltaf hætta á því,alla vega í mínu tilfelli.            Hafi eitthvað endanlega gert mig að hörðum andstæðingum vinstri aflanna,  þá er það,framkoma þeirra gagnvart,sterkasta,vinsælasta stjórnmálamanni seinustu ára,svo og árásum á manninn sem gerði Kópavog að "borg".                            Væri ekki fyrir fjárans kreppuna  og ósvífna árás stórþjóða, héldi ég mér til hlés. Það að vera Íslendingur ætti ekki að vera; hvað gerir þetta land fyrir mig?  heldur hvað get ég gert fyrir landið mitt. (Kennedy).   Það er óskiljanlegt að (heill?) stjórnmálaflokkur sé nákvæmlega sammála,hvernig við bregðumst við Icesaveóskapnaðinum,að því leiti er V.G. langtum fremri,Samfylkingunni,    liggur ekki marflöt í heilu lagi fyrir kúgun stórveldanna.        Ég fagna að nokkrir af mínum vinum eru komnir á mitt(okkar) band,sem voru það ekki,ég held áfram að vitna í bloggfærslur skoðanasystkina minna,sem eru svo vel að sér og geta alltaf sýnt Esb-tilskipanirnar. Þakka fyrir það.   

Hvernig mælist manngerðin??

 Ég er með uppástungu, eitthvað líkt þessari sögu,sem er dagsönn,en gömul.    Í áhöfn fiskiskips nokkurs voru  tveir menn, Pétur og Páll áberandi lágvaxnastir.            Dag einn ræddu menn um, hvor þessara manna væri lægri,sitt sýndist hverjum,eins og gengur. Það varð því ákveðið að þeir skildu mældir,sem þeir samþykktu.          Þeim var gert að leggjast á þilfarið og höfuðin nema við brúnna.      Annar(Pétur)  var sýnu séðari (lúmskari)  ,sparkaði stígvélum sínum niður af fótum sér,svo lítið bar á.  Tveir skipverjar framkvæmdu síðan mælinguna,fyrst á Páli,síðan Pétri.       Málbandinu hélt annar skipverja upp við höfuð þess ,sem mæla skildi og   hinn dróg það niður að botni stígvélsins.   Páll mældist lægri og trúgjarn sakleysinginn,tautaði "mikið asskoti mælist hann Pétur vel".

Hæstvirtur Utanríkisráðherra

                      Segðu það þá uppi á Arnarhóli,ef  þú telur ræðustól alþingis vanhelgast við sannleikann. Margir aðrir staðir eru örugglega tiltækir t.d. Ruv.
mbl.is Verður að klára Icesave af ótilgreindum ástæðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alexander,kveikir á jólatré í Garðabæ ásamt Helenu.

 Hann fæddist fyrir 9árum,þann 13.des. barnabarn mitt. Fljótlega kom í ljós að eitthvað var ekki eins og það átti að vera. Vitað var í meðgöngu að barnið væri með gat á hjarta. Það reyndist stærra en haldið var í fyrstu.  Átta daga gamall var hann skorinn upp,og ósæðinni snúið,því hún var við það að stíflast.  Eftir hálfan mánuð,var ákveðið að fara með hann til Boston.  Það er löng leið til Boston,fyrir foreldra barns,hvers líf hangir á bláþræði. Eitt mikilvægt vandamál yrði að leysast með guðs hjálp,ef takast ætti að bjarga því. Mikil tregða var á þvagláti,þrátt fyrir þvagræsilyf.    Eftir að lent var í Boston,gátum við fengið fréttir,að það hefði gengið.Við höfðum safnast saman ömmur og afar og beðist fyrir. Aldrei er maður eins gagntekinn af trú,eins og þegar maður þarfnast hjálpar,Tekur þá á rás á harðahlaupum eftir Kristi,en er kanski eilítið feiminn við að játa það á öðrum tímum. Sannarlega þurftum við á öllum kröftum að halda. Ég hélt á símanum allar nætur,gat fylgst með aðgerðinni sem var lýst beint til foreldranna. Þarna var Alexander í u.þ.b. 2 og 1/2 mán. Sú stund rann upp að læknirinn góðkunni,Perry, taldi hann ekki hafa það af og tilkynnti það foreldrum. Þá gerðist kraftaverk, þau,við,vorum bænheyrð.      Hann var grannur og veikburða þegar hann kom loksins heim. Þurfti næringu gegnum ,,sondu,, og síðan að læra að matast og drekka. Engin vissi hvort hann gæti einhverntíma gengið,þurfti oft á ári að fara á spítala vegna lungnabólgu. Í dag er hann í 3.bekk Flataskóla, gengur en þarf spelkur og sjúkraþjálfun. Það sem læknar hjúkrunarfólk þjálfarar,kennarar hafa gert gleymdi ég nokkrum? Verður seint full þakkað.                                                 Og í dag stendur Alexander ásamt vinkonu sinni og tendrar ljós jólatrés Garðabæjar.  Afreksmenn Garðabæjar fellur þessi heiður í skaut.     

Árni Þór, .

                             Árni þór,ég samþykki ei.
                            að skuldi Icesave sjóðinn,
                             þú veist það, Solla sagði nei
                             þið eruð ekki þjóðin.
                             

           ´En auðvitað tökum við ekki mark á því,sögðu
í uppnámi.        En þið skuluð taka mark á mótmælum okkar á morgun. Ég og sjálfsagt fleiri spyrja sig hvernig geta þessir þingflokkar,sem skipa þessa stjórn,unnið öllum árum í þjónkun við órétt útlendinga.vitand,(þarf ekki að segja mér annað) að þeir neyta aflsmunar,til að knésetja okkur. Að því leiti er hún(þessi stjórn) lítt skárri en útrásarvíkingarnir,sem eiga nú ekki upp á pallborðið hjá okkur,að ég segji nú ekki ljótar     Elskulega þjóð! Sjáumst á morgun.

Einn gamall

                   Þú kemst á Norðurpólinn,stendur þar,    andlit   þitt og öll framhliðin,snýr í suður.
                   

þú gengur 3 skref aftur ábak, í hvaða átt er það????
                    
                    


Steingrímur M. Sigfússon.

        Samdi hið hugljúfa lag,  ,,Haustkvöld í skógi,,   um það leiti,sem fyrstu rollurnar urðu eftir,á fjallinu Tálkna,er smalað var,ætla ég miðað við nýustu fréttir.                  Haustið 1949, var dansleikur í Dunhaga (var áður Góðtemplarahús). Dansgestir biðu eftir rútu,sem átti að flytja þá til Patreksfjarðar. Steingrímur heitinn, stóð með nikkuna upp við vegg Dunhaga og samdi  þetta fallega lag.  Það var í miklu uppáhaldi hjá okkur nemendum á Núpsskóla í Dýrafirði.  Ætlaði að láta það fylgja hér með en "klaufinn" ég náði því ekki. Bíð góða nótt.

SÁR

                   Er nokkuð vit í að opna þá eymd
                   sem augljóslega engin skilur,
                   þú verður hvort sem er grafin og gleymd,
                   og gærdagsins kenndir með sem þú dylur.

Árangursrík innheimta.

           Seint á seinustu öld fluttu tengdaforeldrar mínir á Jökulgrunn,sem tilheyrir Hrafnistu í Rvk.    Þau seldu íbúð sína í Álftamýri. Kaupendum leyst vel á eldhúsborð og stóla,sem þau gátu ekki haft með sér og föluðust eftir því,sem var samþykkt og verðið ákveðið. Bundist var fastmælum að kaupandi kæmi í næstu viku og greiddi umsamið verð. Sú vika  leið og margar aðrar,án þess að greitt væri,þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir þar um.             Aldurhniginn tengdafaðir minn var ekki sáttur við þessa framkomu,enda alltaf 100%,með sitt á hreinu.   Þessi gamli skipstjóri hafði neitað á árum áður að róa,nema útgerðin sem hann vann hjá,gerði upp við áhöfn sína,þegar vanhöld voru þar um.  Glaður hefði hann gefið þessa peninga eftir, ef fjölskyldan hefði verið í nauðum stödd, en svo var aldeilis ekki. Hann ætlaði einum af sínum yngsta afkomanda þessa aura.    Sonur minn Kristján  heyrði að afa hans sárnaði mikið þessi framkoma og fékk leyfi hans til að fara og innheimta þetta lítilræði.        Skemmst er frá því að segja að Kristján heimsótti þann ,sem trassað hafði greiðsluna. Eftir smá inngan og þóf,dregur strákur upp ávísanahefti,skrifar tékka með nákvæmri upphæð skuldarinnar,réttir honum og segir; Þessi ávísun er áreiðanleg,bið þig að láta mig hafa þessa upphæð í peningum,því ég vil að afi minn trúi að hann sé ekki svikinn.  Hann fékk peningana,en vildi ekki ávísunina,með þeim orðum;,,Það borgar engin fyrir mig.,,         Tengdapabba var tíðrætt um þetta afrek,sagði oft hvernig fór strákurinn að því að fá hann til að borga. Hann fékk aldrei að vita það.   Datt í hug í þessu sambandi,að Bjöggar kæmu og segðu;Nei landar mínir það borgar engin fyrir mig.         

Steingrími kallinum dettur ekki í hug að aðrir en hann skipti um skoðun

                Auk þess er það ekki það sem þjóðin þarf á að halda, segir hann.         Þjóðin þurfti svo sannarlega á því að halda í seinustu kosnigum,að hann héldi sín heit,eða tryði því sem hann sagði;AGS. burt,ekkert Esb.  ´Hlustaði á alla umræðuna á Alþingi í dag, ræða  Ragnheiðar Elínar Sjálfstæðisflokki,heillaði mig.
mbl.is Hétu öll stuðningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Helga Kristjánsdóttir
Helga Kristjánsdóttir

Helga Kristjánsdóttir bara húsmóðir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 146866

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband