Færsluflokkur: Bloggar

Putta-mál

          Oft sárlega vantað merki,sem þýðir fyrirgefðu,sérstaklega í umferðinni.Allir þekkja þumalinn upp,sem þýðir góður,gamla "vaffið",sem Chirshill notaði(oj),svo ljóta langatöngin,lófana saman í bæn,puttanum potað í hausinn sem þýðir fífl,krosslagðir fingur,mun verða.Hægt að senda fingurkoss auðvitað og vinka,en Fyrirgefðu! Verðum við ekki að finna það upp svo Tjallinn geti notað það á okkur eins og honum ber.Í þessari frétt sýndi Shaun Wright-Philips 2sem þykir niðrandi,ætli baugfingur sé notaður með löngunni,þeir eru vel að sér í þessu. 

 


mbl.is Knattspyrnusambandið rannsakar Shaun Wright-Phillips
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

DAVÍÐ ER BESTUR

             Hana nú hrökkstu við lesandi góður,en ég meina´ða.Davíð þór skrifar bakþanka fréttablaðsins í dag.Þótt allir geti lesið það,vil ég taka undir með honum,þar sem hann lýsir þeirri skoðun sinni ,að við ættum að sýna þeim fjölmörgu Íslendingum,sem misstu annað og meira en peninga í þeim raunverulegu hörmungum sem dunið hafa á þjóðinni,þá virðingu að gæta tungu okkar þegar við börmum okkur yfir blankheitum.   Tek líka undir með Björk,hlustum á stelpuna. Hrunið leysir krafta úr læðingi,rétt eins útrásin gerði.    Við erum að raða brotunum saman "Ég/þú særi mig á þeim,en samt er það gaman". Áfram Ísland.

Fjallkonan fríð,er ekki minni en landvættirnir,eg gef henni orðið:


                                     Nú er nótt,ég er barmafull af ást,

                                   notalegt að vita börnin sofa vært.

                                   guð ég var að biðja þú sást

                                   og heyrðir hve þetta er mér allt kært

                          
                           þeim eldri fylgi vizka,tilað vinna með allt sem þau hafa lært.   
                            
                                                                                                                  
                                                                                                               


Afmælisbörn

     Öld er liðin frá fæðingu hins ástsæla ljóðskálds,Steins Steinars.Á þessum degi fyrir 43 árum,fæddist dóttir mín Freyja sem býr nú á Akureyri.Það eru ekki margir sem hafa fæðst í Kópavogi, "barnabænum",sem fékk það viðurnefni á þessum árum,vegna barnafjöldans þar.Eitt fæðingarheimili var starfrækt,á Borgarholtsbraut og var rekið af miklum myndarbrag.
           
        Freyja er stolt af að eiga sama afmælisdag og skáldið,einnig að vera eina systkinið sem er orginal,Kópvægingur.Margir þekkja söguna af konu sem var að því komin að fæða,á þeim tíma sem ekki var komið rennandi vatn inn á heimilin.Finnbogi Rútur var þá "stjórinn".

   Verðandi faðir var orðin órólegur vildi koma konu sinni sem fyrst á fæðingardeildina.Hann hringdi því þangað, bar upp erindið við ljósmóður þá sem svaraði. Hún spyr að bragði "er vatnið komið"

    "Nei hann Finnbogi Rútur var nú búinn að lofa að það kæmi í vor en það er ekki komið enn" (fært í stílinn af mér)   
                            Þarna skipti tíminn og vatnið miklu.


Svo getur maður verið pirraður líka

        Búin að lesa næstum hvert einasta blog, og nýustu fréttina af Kaupthingi.Þótt mig langi að lemja Tjallann,sé ég fyrir mér landa okkar spígsporandi á Laugaveginum í London,á fyrstu tímum útrásar,kanski smá hikandi,en áræðnari,kærulausari með tímanum.
   
                                    
                                   Er ég að villast vonlausan stíg

                                   eða verður hér allt að gulli

                                 æ!einu gildir hvar matast og míg

                                 verði milli eða á mig drulli . 

Við eigum víst sjóði

              

                                Þótt sálin þjái og þoli nauð
      
                               og þrjóti gleðin sanna

                               óskertan á ég samt auð

                               endurminninganna.

Þingsetning

opnaði sjónvarpið einmitt þegar forseti vor gekk í þingsal.Hlustaði á upphaf ræðu hans þar sem hann kom inn á samkennd íslendinga og baráttu.Á erfiðum tímum og í sjálfsstæðisbaráttu fyrri tíma lögðust allir á eitt,til sigurs.Bóndinn við orfið,verkamaðurinn við grjótið,sjómaðurinn við keipinn,hann nefndi ekki húsmæðurnar,vinnukonurnar,við eldavélarnar og í rúminu að ylja þeim og fæða mannauðinn. Fósurjörðin lengi lifi húrra,húrra,húrra,húrra.


Dagurinn í dag

  Byrjaði með,bjartsýniskasti um gott gengi knattspyrnulansliðs stúlknanna okkar.Engin afmæli bókuð,né heimsóknir,svo upplagt að kúra bara og horfa á leik þeirra.Þær fóru alltof seint í gang blessaðar,enda spilar spennan mikið inní svona mikilvæga leiki.Þær frönsku eru ekkert mikið betri, Bompastor og Brussuqier eða hvað þær nú heita.     "Við"skulum komast til Finnlands.  Hér heima allt á fullu í lokaslag karlanna,ég óska F.H. til hamingju með Íslandsmeistaratignina.      Góð tilbreyting frá kreppu-umræðum að horfa á efni úr íþróttum. Í enska boltanum er Hull að spjara sig og það gegn Arsenal,hún Ingibj.bloggvinkona er auðvitað ekki sátt við það.       Ég hef einhversstaðar skrifað á bloggið hennar að ég vonaði að Hull spjaraði sig, vegna fyrri kynna minna og togarasjómanna þaðan í fótboltaleikjum á Þingeyri. Manchester United vann sem betur fer í dag.Ekkert er öruggt í þessum blessuðu íþróttum,við höfum séð Tiger Woods slakan,en hann missir ekki tignina við það.U.S.A. vann Evrópu í golfi þrátt fyrir fjarveru hans.Góðar stundir,Manutd-Fan


Stelpurnar okkar

         Eiga hug minn allan í dag,nema hvað! Nú er komið að þeim,fósturlandsins freyjum,að sýna mátt sinn. Ekkert "bíb"á dagskrá.Varnarleikur liðsins hefur eflst mikið,en þjálfarinn ætlar að sögn ekki að pakkaí vörn,það kemur Frökkum örugglega á óvart,áræði stúlknanna fram á við færir þeim mark fljótlega.Er ég að lofa einhverju? Nei,þau eru að lofa góðu, ÖLL.
mbl.is Vörn ekki besta sóknin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

YES SIR

                 Always look at the bright side of live.      Hvernig sem fer á morgun og alla daga.
mbl.is Ferguson ánægður með leikinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Helga Kristjánsdóttir
Helga Kristjánsdóttir

Helga Kristjánsdóttir bara húsmóðir

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.8.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 148957

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband