Forseti Íslands

                    Er réttlátasti forseti í heimi,til hamingju Ísland.

Forseti Íslands

           Er réttlátasti forseti í heimi. Til hamingju Ísand ég er hrærð.
mbl.is Forsetinn staðfestir ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Treystum á glaðværa strákinn á bryggjusporðinum.

          Mynd þessi til hægri var tekin 1951. Börnin á myndinni eru að fagna forseta sínum,Ásgeiri Ásgeirssyni,sem heimsótti Þingeyri og kom sjóleiðina með varðskipi. Þessa mynd færði Ólafur R.Grímsson,Þingeyri að gjöf á sinni ferð um landið. Hann er þarna fremstur í vesti,ég er hinu megin við bílinn,með hvítan turban eða húfu. Húsið "mitt" er 3ja frá vinstri. Kristján Þór sonur minn færði mér myndina að gjöf og sendi mér svo kópíu áðan. Ég sá þessa mynd í Ráðhúsi Þingeyrar í sumar,fór að segja honum frá henni,,,þetta er líkt honum. Nú er bara að sjá hvað forseti vor gerir!!

Ég var á þingpöllum,en fór fljótlega eftir að Kristján hóf mál sitt.

              Hér sjást úrdrættir úr hans ræðu...í Mbl.            Þeir vöktu aðdáun mína þingmenn Framsóknar og Hreyfingar, tók eftir í fréttum Ruv. kom úrdráttur úr ræðum Þórs S. og  Höskuldar Þ.   Ruv. hefði  gjarnan mátt birta a.m.k. eina skýringu formanns Framsóknar, á áhættunni við lögsókn U.K. og N.L. Hann nefndi dæmi ef við töpuðum málinu(sem nánast allir telja ólíklegt),væri Ísland búið að skapa fordæmi. Féllu bankar Portugals og Spánar,(talin nokkur hætta á)     væri þjóðir þeirra ábyrgar fyrir öllum innistæðum. Skilaboðin almenningur hér,almenningur þar. NEI TAKK:
mbl.is „Hið ömurlegasta mál“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna þýðir nei ekki nei ??????

           Þurfum við að endutaka það í sífellu,að  98% þjóðarinnar neitaði að borga Icesave-reikninga Landsbankans gamla,6.mars 2010. Mikið er þessi stjórn búin að leggja á sig,til að útvarpa röngum fullyrðingum,enda nægir peningar til  trúboðsins,sem neitar þeim um sakramentið,nema þau neyti aflsmunar,til að nauðga þessu fjandans,svikasamningi upp á "skóflupakkið".        Eftir að hafa lesið pistil Lofts Altice,varaformanni Þjóðarheiðurs,þar sem hann sýnir okkur svart á hvítu,með opinberun plagga á ensku,hvar Steingrímur beinlínis leggst á skeljarnar í bæn um að fá að borga. Lítið leggst fyrir kappann,sem allt of margir kusu og trúðu á,sem einlægan þjóðvarnarliða. Dettur ykkur í hug að við kingjum þessu þegjandi.  Að því leiti erum við ekkert öðruvísi en mótmælendur í Egyptalandi. Skrifi forseti vor undir,hættum við ekki,það eru til leiðir til réttlætis án ofbeldis. Hvenær og hvernig birtist hin réttláta  reiði? Við höfum séð hana hjá stjórnmálamönnum af minna tilefni. Nægir að minnast fleygra orða Jóhönnu,sem enginn var að brjóta á, þegar orðsnillingurinn og vestfirðingurinn,Jón Baldvin hafði,betur í kosningu S.F    ;minn tími kemur;    Ég veit ekkert um þennan tíma hennar,kanski er hann kominn núna til að víkja. Eða að hennar mati þegar hún varð forsætiaréðherra. Hún hefði betur haft að leiðarljósi,,,, þjóð mín varð fyrir áfalli, mér ber að fara vel að henni.   Í stað þess "nauðgar" hún   henni á fyrstu 6 mánuðum.vegna eigin hvata,varnarlausum,vonlausum,fátækum. Við sögðum nei,nei,nei,nei, og gerum enn.

Saga kýrinnar kálffullu.

    Stökktu bara ,ég er orðin svo leið á urrinu í þér. Í stóra loðna hausnum hefurðu vitið,sem er lítið annað en slægðin og grimmdin,sem kennt hafa  þér að veikja varnir mínar með glefsi sem særa lendar mínar.     Hyenurnar virðingarlausu vinir þínir eru orðnar soltnar,þær eru óþolinmóðar,gera þig órólegan og æstan.       Hann er ójafn þessi alvarlegi leikur,barátta upp á líf of dauða. Er hjarta mitt barðist í angist,opnaðist gátt í heilanum í hausnum mínum,þar sem hornin eru. Já hornin,get ég varist með þeim?  Ég hef ekki þá lipurð og sveigjanleika sem stóra Kattarkvikyndið hefur,en nú legg ég   í hann með mína einu vörn. Já vörn,ef hann fellur er hættan liðin hjá, en ég hef ekki sama áhuga á honum og hann á mér,oj! éta kött!  Leikslok!      Ég hafði uppgötvað áður óþekktar varnir,ég ætla að kenna óbornum kálfi mínum,að ljón eru ekki óvinnandi,þótt þau teljist konungar dýranna.


Nú slá þeir í klárinn

           Samfylkingarmenn. Heyrði í Magnúsi Orra Schram á Útvarpi Sögu,síðan stutt viðtal við Unni Brá Konráðsdóttur í síma. Magnús er eins og allir vita í S.F. og vill að við borgum Icesave svika-samninginn. Þáttastjórnandi, Pétur, spurði hann hvers vegna við ættum að borga; Við lofuðm því; hverjir spyr Pétur?  ,, Fyrrverandi ríkisstjórn Geir Haarde,,. "Það er ekki rétt" áréttaði Pétur. Samfylkingin er farin að gera sér grein fyrir því, að á þessari útvarpsstöð skal þruma þótt ekki tækist honum að sneiða fram hjá Pétri Gunnlaugssyni lögfræðingi,með þessi ósannindi.  Enda hafði Magnús orð á því (efnislega),að hans málflutningur,skyldu hlustendur heyra og hraðaði sér,sem mest hann mátti,ef snúið gæti einhverjum.  

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Helga Kristjánsdóttir
Helga Kristjánsdóttir

Helga Kristjánsdóttir bara húsmóðir

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.8.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 148987

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband