Vonbiðill

Hann er farinn að syngja kostgangarinn minn,frá því í hríðinni í vetur. Hann syngur nokkur tilbrygði, 3/4 takta,síðan krullur og krúsidúllur í djass stíl,þann takt tek ég til mín. Ég veit ekkert hverra fugla hann er,en hrífst af bjartsýni hans.
Rómantíski vinur minn!! Heillaðu hana upp af klónum,svo hún flögri til þín,byggið ykkur hreiður,ég skal stugga villiköttunum frá,þeir eiga að vera heima hjá sér ,á þingi. Ég ætla að sofna við hugljúfu og hreinu röddina þína,gott að þú finnur öryggi í Skaldborginni minni,góða nótt.

Mancini tjáir sig

Ef og hefði skýringar eru oftast áberandi hjá knattspyrnustjórum,eftir léleg úrslit þeirra. Það verður alltaf þannig,ég segi bara ef Balotelli hefði misst algjörlega stjórn á sér,eins heitt og honum var í hamsi,hefði hann fokið út af. Hann hefði ekki skorað,City-menn 1 færri og líklega tapað honum. Svona vanstylltur anga strákurinn,náði sér í prik,með því að skora afbragðs mark. Það er ekki oft sem maður sér leikmenn í áberandi samkeppni um hverjum beri að taka aukaspyrnu. En hefði Barotelli fengið að taka seinustu aukaspyrnuna sem City fékk í leiknum,er eins líklegt að hann hefði skorað. Fullt af hefðum hér,en stærsta og mér kærust er hefð ,annarar merkingar, Manchester United að vinna Englandsmeistara titilinn.  Leikurinn í kvöld er meira spennandi fyrir þær sakir að fáir leikir eru eftir og City að juðast þetta í hælunum á okkur.    Ef og hefði Vidisch verið heill,heilinn í vörninni,þá......
mbl.is Mancini: Búið ef United nær átta stiga forskoti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Seinheppin!!

Ég hefð sko látið gabbast,ekkert skilið í klaufagangi mínum. Líklega hringt í tölvu viðgerðarmanninn sem var hér í gær. En ég gerði sjálf smá at í ath.dálki bloggvinar,fannst ansi dauft yfir öllu,gerist jafnan þegar farfuglarnir mínir,sækja sól í Ameríku. En hann tekur sig vel út á 10.000 kr. seðlinum hann Davíð. Þetta er virkilega frumlegt gabb. Geri aðrir betur.
mbl.is Vildu Vigdísi, en fengu Davíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn skrattast Skattmann

Segi ég upp úr eins manns hljóði,þótt hafi ekki nema takmarkað vit á hvernig fiskveiðum skuli stýrt.
Það þarf nú ekkert nema brjóstvit,til að skilja hverslags óréttlæti felst í þessu veiðigjaldi,sem Adolf nefnir í þessari frétt. Mig tekur sárt til byggðalaga í dreifbýlinu,leiði þessar aðgerðir til að atvinna leggist þær af. Hvað eru sjávarpláss án fiskibáta á stími heim,með björgina!?? Eru þau á leið í úreldingu,eða hvað??

mbl.is „Úr stjórnun í skattlagningu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórn reynir enn að ryðja brautina fyrir ESB.

Helgi Hjörvar vænir Sjálfsstæðismenn um hræðslu og klækjabrögð. Róbert Marchall að þeir hafi stolið sigrinum í þessu máli,sem hann líkti við lappleik 0-1 . Ég segi hvernig getur stjórnarandstaðan horft upp á Ríkisstjórnina vinna að því,skipulega að eyða þjóðríkinu Íslandi?? Nota til þess fjármuni landsins og þyggja mútufé Ebésins,sem ólmir vilja komast yfir land og haf. Mér varðar andsk. ekkert um hvort þetta lið ,,þjóðin hennar Ingibjargar Sólrúnar,, gefst upp, eða ekki,eins og Valgerður Bjarnad. áréttaði svo faglega. Þau geta bruggað sín launráð,en þjóðin er löngu búin að sjá,í gegnum þau,vita nær alltaf hvað kemur næst,farin að lesa leikinn. Við ,,hin,, ætlum ekki að gefast upp,sjáum til hvað má sýn meir tryggðin eða valdagræðgin. það á því við hið forkveðna; "Lengi má manninn reyna".
mbl.is „Við gefumst ekki upp“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Kærum félagar"

 Kærum og sækjum fram,til að afla málstað okkar fylgis. Köstum krónunum,þær gagnast ekki lengur rónunum. Kærum rakkana fyrir að kíkja í tóma pakkana. Nú vilja þeir dollar, kanadiskan,ha,ha,þá fer hún að játa, gott og vel afsölum okkur ,,hluta,, fullveldis,efnahagslegu fullveldi og tökum upp Evru,sem ávallt var stefnt að......... Hversu lengi ætlum við að þola þessum örflokki að böðlast á Íslandi?? Við megum engan tíma missa,nú fer óstjórnin að þiggja stórar ölmusur,sem hún kokkar ofan í landsmenn. Munið nammið þeirra er baneitraðBandit
mbl.is Segir jafnaðarmenn geta sótt fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur skarpi !!

Það má margt læra á klósettinu, en þessa klæki kunni utanríkisráðherra ekki. Því miður kann hann allt of marga annarar gerðar,sem vonandi verða rifjaðar upp,ef til ,,rað Landsdómsákæra,, kemur i nálægri framtíð. Þessir gömlu samstarfsráðherrar Geirs Haarde,benda ekki á neitt við vitnaleiðslur,sem saknæmt gæti talist af hans hálfu. Þessi ömurlega ríkisstjórn fékk samt sínu framgengt,en uppsker ekkert nema enn þá meiri fyrirlitningu,eftir þriggja ára vinnu í að koma landinu á kaldan klaka.
mbl.is Össur vissi ekki um tengslin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Helga Kristjánsdóttir
Helga Kristjánsdóttir

Helga Kristjánsdóttir bara húsmóðir

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.8.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband