"Yfirborðsmennska"

  Datt um þetta gamla gilda orð í þrætum bloggara,sem öll snúast um stríðið í Úkraínu.
  Einn þeirra Borgþór minntist á að amma hans notaði það um þá sem fórst ekki vel að skýra mál sitt í ræðum og riti?) - Það er eins og þetta stríð skipti okkur meira máli en þau fyrri sem voru háð seinustu öld.Það gerir lymskuleg þáttaka Íslands sem allflestir Íslendingar eru rasandi og bálreiðir yfir. Hvað stoðar það mann að bísnast yfir hvernig komið er,máttum við ekki vita hvað var á seiði? Þeir sem muna alheimshrunið 2008 muna líka hvernig Kratar trilltust og ruddust með myndavélar inn í sal sem leigður var okkur sjálfstæðissinnum (Framsókn og Sjálfstæðisfl.)ráku upp í fésin okkar óvinanna.Þetta er sama fólkið sem aldrei er hægt að treysta að vinni Íslandi gagn til framþróunnar.Lymskuna þarfnast þeir ennþá meðan hinn almenni hefur ekki áttað sig á að fella þá í kosningum.

Það er að þykjast vera stoðin og styttan og vera jafnframt sannfærandi.Á meðan verður tuskast hér og menn komast nær sannleikanum.  


hvernig virkar sannleikurinn í munni globalista?

  Þá sjaldan að þeir birta eitthvað annað en sem þeim þykir eftirtektarvert úr öðru en (oftast)fölskum stríðsmyndum,er farið að halla undan forseta og varaforseta BNA sem heimtar stríðstól fremur en að semja um frið. Það voru þó þeir og ESB sem ógnuðu þar til Rússar sáu sitt óvænna.  


mbl.is Segir Trump hafa labbað út úr viðtali
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru þeir núna orðnir 6?

Las á þriðjudag þeir væru 5. Hann lék ekki allar mínúturnar í tveim þeirra og annan rétt innan við 20 mínútur;gott að prófa minni mitt. En menn hafna leiðinlegu fjasi okkar við vistaskiptin sem getur leikið menn grátt þrátt fyrir reynslu og aldur. Hann lék á sjálfan sig með því að leika eins og bráðabirgða-center; Endurfæddur Ronaldo fjölskyldunnar! Okkar Man.Utd.fan- fagnar meðan stætt er með allra bestu óskum.Með kv.til Tom og Lilju Irene. 


mbl.is Ein besta frammistaða Ronaldos síðan ég kom
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fagna fyrirætlun ráðherra um RÚV!

  Á hvað eigum við þá að horfa kannski Kosí á núllinu?


Hér sé guð!

  Er gömul heilsun þegar heimsækir bæ!Þú guðar á gluggann því vitað er að skrattaáhangendur nefna ekki guð á nafn. En ég tala við hann daglega. Veit næstum allt sem ég þarf að vita.


Egill Ólafs og Rúnar Þór, - ræða dægurmúsik og leika sjaldgæfar upptökur.

 Drengirnir höfðu báðir verið á Núpsskóla,líklega 15 árum á eftir mér.Ég brann í skinninu að segja þessum alvitru snillingum í hljómlist,velta fyrir sér sjaldgæfa gamla orðinu dús.þeir voru þó nokkuð vissir um að þýddi áunninn kunningsskapur við manneskju. Akkurat og kallst að þéra ehv.td.skólastjóra.,Svo kemur að því við skolaslit að meistarinn býður þér dús þú samþykkir og eftir það þúist þið til Eilífðar.   æfing


Einn af kvillum -

mínum er Migreni andstyggilegur þegar hann er hvað mestur.Ólíkt öðrum þolendum sem ég þekki er höfuðverkur óverulegur. Þeim mun meir er einskonar skynvilla og þungi sem leggst á sálina. Það var óhuggulegt fyrsta kastið sem kom vinnandi í kíosk SÍS í Austurstræti. Sá fólk flöktandi líkt og truflanir í sjónvarpi,leist ekki á blikuna gerði mér grillur,"já svona er að verða klikk".verslunarstjórinn sendi mig til Úlfars augnlæknis þar heyrði ég fyrst kvillaheitið Migreni.Verkjalyf þurfti ég aldrei enda lagðist þetta á t.d. minnið og og óútskýrða vanlíðan.

En nú hafa lyfjavísindin fundið ráð við Migreni gott fyrir þolendur,nokkrir afkomendur mínir hafa erft þetta misjafnlega mikið.   


mbl.is Kalla 1.000 Íslendinga inn í mígrenirannsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Helga Kristjánsdóttir
Helga Kristjánsdóttir

Helga Kristjánsdóttir bara húsmóðir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 146664

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband