Lífskoðunarfélög eins og Siðmennt og Vantrú,

   Ferma börn sín í Háskólabíói sem missa því af því miklvægata sem þau ættu að fá frá foráðamönnum sínum,fræðslu um Krist barnavininn mesta,guðsson.  ----

Síðan leitar þetta sama fólk að kirkju til að kveðja sína nánustu í hinsta sinni. Hvers vegna fara ekki jarðarfarir fram í Háskólabíói eins og þykir sæma svo vel fyrir börnin. 


"Það er meðal annars það sem ekki má”!

    ......Og mér varða að orði glettan; 
         Undarleg er vor rulla,
        í þessu jarðlífi, 
        annað hvort er það drulla,
        eða harðlífi.                  
Það vísar svo sterkt til öfga viðurlaga í heimi sem við viljum alls ekki flytja inn og gera að okkar regluverki.


mbl.is Breta sleppt úr fangelsi í Sádi-Arabíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinnudeilurnar hvimleiðu.

  Sem eru                             það vissulega ,en hefur nokkurn tima komið til álita að vinna að heildar samræmingu starfsstétta,greina hverjar beri meiri áhættu,erfðaraleika á  vettvangi þau utandyra og fleira sem lærðir menn geta unnið af reynslu og þekking. Gerið einu sinni eitthvað saman allir þingmenn og leggið niður annan ágreining.Eða eigum við að virða kosningar að vettvangi? Fróðlegt að sjá hvernig viðbrögð yrðu. Það liggur í augum uppi að þá lotu vinnum við kjósendur gamlir sem ungir. Góð tilbreyting eftir að hafa verið virtir að vettugi þrátt fyrir erfið kjör.Ja hérna!! Er ég að segja þetta sem hef aldrei tekið þátt í launadeilum,eða krafist neins...þð fara að verða síðustu forvöð!   


mbl.is Ný, óvænt og alvarleg staða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alltaf að leita!

 Reglusemi er mér ekki töm,ekki það að ég sé höll að flöskunni,nei það eru litlu hlutirnir sem ég skil eftir hist og her. Segi svo oft á dag;,Hvað hefur orðið af gleraugunum,?Eins og einhver annar en ég hafi tekið þau.Eða bréfsnifsin maður minn,ég skrifa niður boð og pantaða tíma,týni svo miðunum.
 Í ákafri leit fann ég þennan,hlýt að hafa verið afar upp með mér þá:

    Mína kosti meta ber
    og telja til manngildis
    að óumdeilanlega er
    ágæt til undaneldis.


Ég er komin heim!

   Það er eins og að heimta ísland aftur úr "helju",að hlusta á fjölmenna íslenska áhorfendur syngja þetta vinsæla lag,sem Óðinn Valdemars gerði ódauðlegt. Gæti ekki verið meira hrífandi óður til Íslands....Það var körfuboltalið okkar sem íslensku áhorfendurnir sungu til dýrðar. Hvergi er blái liturinn eins heiðblár,sem í íslenska fánanum og landsliðsbúningunum.Hann tekur öllu fram,enda skírður sem tákn himinsins,sem er bárri hér,en nokkurstaðar annarstaðar,Þannig virkar ættjarðaerástin. 


Er nokkurstaðar til öryggi fyrir falsi og lygum.

      Eftir því sem tækninni fleygir fram,er hún oftar notuð til að hafa rangt við. Þessir undraverðu tæknisnillingar sjá fram á að verða að finna upp varnir gegn uppfinningu sinni.Nema að stjórnendur skákkeppni skikki keppendur til að tefla nakta.


mbl.is Bókstafleg brögð í tafli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Staksteinar-um mál málann þessa dagana.

   Auðvitað er það um kröfur ESB.vegna skulda Grikkja og síðan virðingu sambandsins á úrslitum atkvæðagreiðslunnar þar um. -"Virðingin ein og sér segir ekkert nema þú mátt segja nei,en við fylgjum okkar reglum sem er það sem gildir".- Staksteinar benda á að í samtölum ráðamanna ESB.við forsætisráðherra Íslands í gær,virði þeir að fullu ákvarðanir stjórnvalda,að Ísland sé ekki umsóknarríki.-"Mér er nær að halda að þeir virði hana fullir"-Því ekki er að undra að greinarhöfundur sakni útskýringa á þesari mega-virðingu og efist um rétta túlkun þess,þegar við lesum þetta; Varaþingmaður Pírata og fyrrverandi starfsnemi við Evrópuþingið,Ásta Helgadóttir,sagði í viðtali í vikunni að utanríkisráðherra hefði ekki náð að draga Ísland út sem umsóknarríki því það sé ekki hægt,"Það þarf að segja sig út"..... 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Helga Kristjánsdóttir
Helga Kristjánsdóttir

Helga Kristjánsdóttir bara húsmóðir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 148750

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband